Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ólafur ráðinn sveitar­stjóri Skaga­strandar

Ólafur Þór Ólafsson hefur verið valinn úr hópi sextán umsækjenda til að taka við starfi sveitarstjóra Skagastrandar. Gert er ráð fyrir að sveitarstjórn staðfesti ráðninguna þann 22. júlí næstkomandi og að Ólafur taki til starfa þann 1. ágúst 2026. 

Enginn fram­halds­skóla­kennari meti stöðu ný­nema mjög góða

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lokið fyrstu greiningu á stöðu námsefnis í stærðfræði grunn- og framhaldsskóla. Þrjátíu prósent kennara segja aðalnámsskrá styðja vel við skýra framvindu í námi og sextíu og tvö prósent framhaldsskólakennara meta stöðu nýnema frekar eða mjög veika. Lagt er til að stærðfræði verði skilgreind sem forgangsverkefni til næstu þriggja ára.

Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds

Mjólkursamlag KS, sem framleiðir Voga ídýfu hefur ákveðið að innkalla nokkrar framleiðslulotur af ídýfu með kryddi. Innköllunin nær yfir allar best fyrir dagsetningar frá 28. júlí 2026 til 30. október 2026. 

MAST hafi farið gegn á­liti fagráðs um blóð­mera­hald

Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi krefjast þess að ákvörðun Matvælastofnunar um veitingu leyfis til blóðmerahalds verði felld úr gildi. Samtökin segja blóðtöku í blóðmerahald hérlendis fara langt yfir alþjóðleg viðmið og gangi nærri heilsu og velferð hryssanna. 

Lengja opnunar­tíma í Salalaug

Frá og með 19. júlí og til 27. september 2026 verður opnunartími Salalaugar lengdur á sunnudögum til kl. 22:00.

Heil­brigðis­nefndir verða lagðar niður

Alþingi samþykkti nýlega frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Með lögunum eru heilbrigðisnefndir lagðar niður en gert er ráð fyrir að reglugerðarbreytingarnar taki gildi 1. janúar 2027 samhliða lagabreytingum.

Sparkaði í ellefu ára dreng í kjöl­far dyraats

Tvítugur maður var kærður fyrir líkamsárás í gærkvöldi en hann brást illa við þegar tveir ungir drengir gerðu dyraat heima hjá honum í Suðurbæ í Hafnarfirði. Maðurinn hafi „tekið í“ annan drengjanna en hann er ellefu ára. 

Sjá meira