Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Áróra L Davíðsdóttir skrifar 30. júlí 2026 09:34 Mörg hundruð ef ekki þúsund minkum var sleppt út í Dalsbúi í Mosfellsbæ, síðasta minkabúinu á Íslandi, í gærnótt. Vísir/Lýður Valberg Dýralæknafélag Íslands fordæmir harðlega meint innbrot og skemmdarverk á þremur búum og að dýrum hafi verið sleppt úr haldi. Slík atvik staðfesti dómgreindarleysi þeirra sem að aðgerðunum standi. Félagið lýsir yfir stuðningi við lögreglu, Matvælastofnun og aðra sem koma að aðgerðunum í Mosfellsdal.
Þetta segir í opinni yfirlýsingu félagsins á Facebook-síðu þess. Nýjasta atvikið sé ekkert annað en alvarlegt brot gegn velferð dýranna og eigi ekkert skylt við dýravernd eða dýravelferð. „Sé markmiðið á einhvern hátt að standa vörð um velferð dýra lýsa slík skemmdarverk gríðarlegu dómgreindarleysi og vanþekkingu þeirra sem að þeim standa. Þetta á bæði við um þau dýr sem sleppt er úr haldi og dýr í nærumhverfinu. Það er dapurlegt að sjá fólk ekki treysta sér til að standa fyrir málstað sínum á málefnalegan hátt heldur beita varnarlausum dýrum fyrir sig. Slíkt staðfestir einungis dómgreindarleysi þeirra sem að þessum aðgerðum standa,“ segir í yfirlýsingunni. Af myndum að dæma séu dýrin hrædd og umkomulaus við þessar aðstæður. Erfitt, og oft nær vonlaust, sé að handsama þau dýr sem sleppt hefur verið eða aflífa þau með mannúðlegum hætti. „Að reka málstað sinn með þessum hætti verður aldrei samþykkt og er ekki leið til að leysa ágreining eða stuðla að bættri velferð dýra. Þvert á móti koma afleiðingar þessara aðgerða harðast niður á dýrunum sjálfum.“ Verkefnið sé vandasamt og mikilvægt sé að leitast verði við lausn þess með velferð dýranna að leiðarljósi. “Dýralæknafélag Íslands lýsir jafnframt yfir stuðningi við Matvælastofnun, lögreglu og aðra þá sem nú takast á við þessar krefjandi aðstæður,“ segir í yfirlýsingunni.
Loðdýrarækt Mosfellsbær Dýr Minkum sleppt í Mosfellsdal Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira