Drangar kaupa Brauð & Co Drangar hafa gengið frá kaupum á Brauð & Co, einni þekktustu bakarískeðju landsins. 2.7.2026 09:49
Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Innviðafélag stofnað í samræmi við lög um innviðafélag sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní síðastliðinn hefur hlotið nafnið Göng og brú ohf. 1.7.2026 15:30
Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. 1.7.2026 14:08
Kanada tekur þátt í Eurovision Kanada tekur þátt í 71. Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2027 sem haldin verður í Búlgaríu. 1.7.2026 14:06
Mango opnar í Kringlunni Verslun spænska tískuvörumerkisins Mango var opnuð á laugardaginn í Kringlunni. 1.7.2026 11:20
Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Mótmæli voru haldin í Suður-Afríku í gær víðs vegar um landið. Mótmælendur krefjast þess að óskráðir innflytjendur séu látnir yfirgefa landið en mótmælendahópar settu fram óformlegan „frest“ fyrir óskráða innflytjendur til þess að yfirgefa landið í síðasta mánuði. „Herferð“ þeirra gegn innflytjendum í landinu hefur leitt til þess að tugþúsundir hafa flúið öryggis síns vegna. 1.7.2026 11:09
Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað áfrýjunarbeiðni Donalds Trump Bandaríkjaforseta í máli þar sem hann hefur verið fundinn sekur um ærumeiðingar og kynferðisofbeldi gegn rithöfundinum E. Jean Carroll. 30.6.2026 00:11
Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Ríkissaksóknari telur ekki tilefni til þess að yfirfara frekar lyfjaakstursmál sem þegar hefur verið lokið. Hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur síðastliðinna sex ára. 29.6.2026 23:24
Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segir það mikinn heiður að hafa fengið frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta lýðveldisins, í heimsókn í Ráðherrabústaðinn í dag. Vigdís var kjörin forseti Íslands fyrir fjörutíu og sex árum í dag. 29.6.2026 23:06
Lést af völdum alnæmis Daveigh Chase, leikkona og fyrrum barnastjarna, lést úr alnæmi að sögn réttarlæknis. Greint var frá því fyrr í mánuðinum að Chase væri látin þrjátíu og fimm ára að aldri. 29.6.2026 21:10