Leggur blessun sína yfir auglýsingar Nettós um „fría heimsendingu“ Neytendastofa hefur lagt blessun sína yfir auglýsingar matvörukeðjunnar Nettós þar sem segir frá „fríum heimsendingum“ ef verslað væri fyrir meira en fimm þúsund krónur. 25.5.2022 13:20
Björn verður áfram sveitarstjóri í Múlaþingi Björn Ingimarsson mun áfram gegna embætti sveitarstjóra í Múlaþingi á kjörtímabilinu sem framundan er. Oddvitar Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi undirrituðu samkomulag um meirihlutasamstarf í Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í gær. 25.5.2022 11:52
BDSM úr sögunni á Akureyri Samfylkingin hefur slitið meirihlutaviðræðum við Sjálfstæðisflokkinn, Framsókn og Miðflokkinn á Akureyri. Ástæðan er sögð vera mikill málefnalegur ágreiningur, meðal annars í velferðar- umhverfis- og skipulagsmálum. 25.5.2022 09:45
Séra Davíð Þór hótar Katrínu og Vinstri grænum helvítisvist Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarnesskirkju, er ómyrkur í máli um þann gjörning að vísa skuli um þrjú hundruð hælisleitendum úr landi á næstunni. 24.5.2022 15:26
Hannes og Steinunn heiðursdoktorar við Háskóla Íslands Skáldin Hannes Pétursson og Steinunn Sigurðardóttir voru sæmd heiðursdoktorsnafnbót frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Hátíðasal skólans í gær. 24.5.2022 15:17
Innkalla leikfangið „Mushroom teether“ Amazon hefur innkallað leikfangið „Mushroom Teether toys for Newborn Babies, Toddlers, infants, Relieve Sore Gum – BPA-Free Chew Toy “sem selt hefur verið á heimasíðu fyrirtækisins. 24.5.2022 14:32
Ólöf tekur við stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar á Reykjalundi Ólöf Árnadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar á Reykjalundi. Hún tekur við starfinu af Láru Margréti Sigurðardóttur sem lét nýverið af störfum eftir rúmlega tuttugu ára starf. 24.5.2022 14:05
Tíðinda að vænta í Hafnarfirði á morgun Stefnt er að því að kynna niðurstöðu úr meirihlutaviðræðum Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í Hafnarfirði á morgun. 24.5.2022 10:51
Tómas Þór fyllir skarð Ólafs á Landspítalanum Tómas Þór Ágústsson mun tímabundið taka við stöðu framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala frá og með 23. júlí 2022 í fjarveru Ólafs Baldurssonar. Ólafur verður í ársleyfi frá þeim tíma til að gegna starfi yfirmanns lungnaþjónustu á Karolinska-háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi. 24.5.2022 09:48
Um sextíu staðfest tilfelli apabólu í Evrópu Líklegt verður að teljast að apabóla muni berast til Íslands á næstunni. Því verða landsmenn að vera sem best undirbúin sem felst í að auka vitund almennings og heilbrigðisstarfsmanna um sjúkdóminn, tryggja hraða og örugga greiningu hans, beita einangrun og sóttkví eins og við á og gefa ráðleggingar um fyrirbyggjandi aðgerðir. 24.5.2022 08:48