Loka hluta Peking vegna nýrra smita Kínversk yfirvöld hafa lokað ellefu íbúahverfum í höfuðborginni Peking vegna nýrrar smitbylgju í borginni sem rakin er til matarmarkaðar í nágrenninu. 13.6.2020 07:54
Spá þurru veðri um land allt á 17. júní Suðlægar áttir verða ríkjandi næstu daga með vætu öðru hverju þegar úrkomubakkar ganga yfir úr vestri. 13.6.2020 07:20
Mikið um útköll hjá lögreglu vegna partýhávaða Lögregla handtók í gærkvöldi mann vegna gruns um líkamsárás í Kópavogi. 13.6.2020 07:12
Þremur bjargað eftir að bát hvolfdi á Langavatni á Skaga Björgunarsveitir á Norðurlandi voru kallaðar út um klukkan 15:30 eftir að skemmtibát með þrjá innanborðs hvolfdi á Langavatni á Skagaströnd. 12.6.2020 17:32
Tíu ár fyrir tilraun til manndráps Landsréttur hefur dæmt Sigurð Sigurðsson í tíu ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í árás sem gerð var í heimahúsi í Neskaupstað síðasta sumar. 12.6.2020 17:01
Íslendingar fá að gista í Köben eftir allt saman Íslendingar, Þjóðverjar og Norðmenn sem ferðast til Danmerkur í sumar fá að gista í Kaupmannahöfn eftir allt saman. Frá þessu greindi danski dómsmálaráðherrann á fréttamannafundi nú eftir hádegi. 12.6.2020 13:54
Koma á fót ferðaábyrgðasjóði Stjórnvöld vinna nú að því að koma sérstökum ferðaábyrgðasjóði sem mun hafa það hlutverk að greiða neytendum fyrir ferðir á vegum ferðaskrifstofa sem felldar voru niður á tímabilinu 12. mars síðastliðinn til loka þessa mánaðar. 12.6.2020 13:29
Bjóða gjaldfrjálsar ferðir út í Hrísey út mánuðinn Akureyrarstofa hefur samþykkt að veita allt að tveimur milljónum króna í styrk til Ferðamálafélags Hríseyjar til að gera því kleift að fella niður fargjöld í ferjuna í samstarfi við rekstraraðila hennar. 12.6.2020 12:32
Eimskip flytur höfuðstöðvarnar Eimskip hefur flutt aðalskrifstofur sínar og starfsemi dótturfélagsins TVG-Zimsen í skrifstofurými Vöruhótels félagins við Sundahöfn. 12.6.2020 12:04