Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta?

Í skilaboðum sem Guðmundur Ingi Kristinsson fékk fyrir afsögn sína var honum sagt að leiðtogar ríkisstjórnarinnar hefðu tekið ákvörðunina um brotthvarf hans. Sömu skilaboðum fylgdi tillaga að yfirlýsingu um að hann hefði sjálfur ákveðið að hætta.

Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur

Þrír af þeim sex sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir aðgerðir lögreglu á þriðjudag verða áfram í haldi. Tveir verða þar til 2. október og sá þriðji til 28. september.

At­vinnu­lausum Ís­lendingum fjölgaði um 700 á einu ári

Í lok ágúst voru 700 fleiri íslenskir ríkisborgarar á atvinnuleysisskrá en ári fyrr. Á kynningu Seðlabankans var skýrt hvers vegna bankinn horfir sérstaklega á atvinnuleysi þeirra: Líklegra sé að þeir séu með lán hjá bönkum og öðrum lánveitendum hér á landi.

Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum

Tilraunir með svokallaðan kosningahermi benda til þess að með núverandi kosningakerfi náist ekki fullur jöfnuður milli þingflokka í um öðrum hverjum kosningum. Þorkell Helgason stærðfræðingur segir kjördæmissætin oft hafa verið of mörg og jöfnunarsætin of fá.

Pawel leggur frum­varp Gríms um netsölu á­fengis fram á ný

Einkareknum fyrirtækjum yrði heimilt að selja áfengi í vefverslun með leyfi sýslumanns samkvæmt frumvarpi sem Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, hefur lagt fram á Alþingi. Hann tekur við málinu af Grími Grímssyni, þingmanni Viðreisnar, sem flutti frumvarp sama efnis á síðasta þingi og er nú meðflutningsmaður.

Sau­tján voru hand­teknir í að­gerðum lög­reglu

Sautján manns voru handteknir í samhæfðum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þriðjudaginn 22. september. Þetta staðfesti lögreglan í samtali við fréttastofu. Sex þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna og eru allir í einangrun. Ellefu manns voru handteknir til viðbótar við sexmenningana, allir sama dag. Lögregla gat ekki að svo stöddu sagt til um stöðu þeirra ellefu í málinu.

350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa

Verði drög um náttúrupassa að lögum missir þjóðgarðurinn á Þingvöllum bílastæðagjöldin sem hingað til hafa runnið beint til reksturs hans. Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður vill að fjárveitingar til garðsins taki mið af fjölda ferðamanna. Hann segist heldur ekki vita hvort kannað hafi verið hvernig passinn gæti haft áhrif á komur að Gullna hringnum.

Launa­hækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu

Stýrivextir gætu hækkað frekar ef næstu kjarasamningar leiða til meiri launahækkana, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Hann varar við því að miklar launahækkanir ofan í kólnandi hagkerfi og háa vexti geti orðið upphafið að harðri lendingu.

Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður

Lagt er til að árspassi að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum kosti 4.500 krónur samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðuneytisins. Lægra gjald, 3.000 krónur, verði í boði fyrir heimsóknir frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir. Fólk með skattalega heimilisfesti á Íslandi fái passann ókeypis.

Hefja at­hugun á fjár­hags­að­stoð Reykja­víkur­borgar

Mikilvægt er að vinnufært fólk festist ekki á fjárhagsaðstoð og komist aftur út á vinnumarkað, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún styður athugun endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar á aðstoðinni, þar sem meðal annars er óskað eftir upplýsingum um þjóðerni þeirra sem þiggja hana.

Sjá meira