Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Framtíð skíðasvæðisins í Skálafelli er á ný komin á borð sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verður beðin um að taka afstöðu til þess hvort endurskoða eigi samkomulag um uppbyggingu svæðisins frá árinu 2018. 3.9.2026 16:21
Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Breyta á reglum Vikinglottó þannig að annar vinningur safnist ekki lengur upp milli vikna þegar enginn vinnur hann. Féð fer þess í stað í varasjóð sem er notaður til að tryggja og hækka fyrsta vinning. 3.9.2026 14:45
Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Meirihlutinn í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur samþykkti í gær að fella niður bindandi hámark á fjölda bílastæða við nýbyggingar og endurnýjun byggðar. 3.9.2026 13:48
Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Stjórnvöld vilja breyta lögum um kílómetragjald eftir reynsluna af fyrstu átta mánuðum kerfisins. Skuld fyrri eiganda á ekki lengur að geta stöðvað aðalskoðun bíls og Skatturinn á að fá skýrari heimild til að leiðrétta rangt reiknað gjald. 3.9.2026 13:18
Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Lögregla fengi meira svigrúm til að rannsaka skipulagða brotahópa samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum dómsmálaráðherra. Meðal annars yrði auðveldara að leita í símum, leggja hald á eignir og hefja símhlustun þegar hætta er á að mikilvæg gögn glatist. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn segir núverandi lög ekki passa við það hvernig brotahópar starfa í dag. 3.9.2026 13:03
Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Gjaldskyldutími á bílastæðum á P1 og P2 svæðum í Reykjavík verður styttur um eina klukkustund á kvöldin samkvæmt tillögu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í dag. Ráðið samþykkti jafnframt að bílahús borgarinnar verði opin allan sólarhringinn alla daga ársins. 2.9.2026 16:55
Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, var eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi ekki hækka stýrivexti í ágúst. Hann taldi að aðhald peningastefnunnar væri þegar töluvert og að áhrif hárra vaxta væru farin að koma skýrt fram í hagkerfinu. 2.9.2026 16:32
Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Bláa Lónið hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026 fyrir uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis og verðmætasköpun á sviði ferðaþjónustu, vellíðunar og húðvara. Alfreð Gíslason handknattleiksþjálfari fær heiðursviðurkenningu. 2.9.2026 15:16
Eigendur Santé neita sök Eigendur netverslunarinnar Santé neita báðir sök í máli þar sem þeir eru ákærðir fyrir brot á áfengislögum og peningaþvætti. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 2.9.2026 14:31
Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Lögmaður Gavia Invest vísar því alfarið á bug að skaðabótamál félagsins gegn Heiðari Guðjónssyni og Úrsus sé liður í skipulagðri rógsherferð. Hann segir málið fara hefðbundna leið í réttarkerfinu og ætlar ekki að flytja það í fjölmiðlum. 2.9.2026 13:10