Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Birgir Olgeirsson skrifar 14. október 2026 16:01 Arna Lára Jónsdóttir segir fyrirhugað 25 ára þak á lánstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána gott fyrsta skref. Hildur Sverrisdóttir telur aðgerðina sýndarmennsku sem fækki valkostum fólks með lítið milli handanna. Áform um að takmarka lánstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána við 25 ár eru sýndarmennska, segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir breytinguna gott fyrsta skref en skoða þurfi áhrif hennar á fyrstu kaupendur og aðra hópa.
Þær tókust á um áformin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Arna Lára er formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og Hildur á einnig sæti í nefndinni. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur kynnt áform um 25 ára hámarkslánstíma, með undanþágum vegna hluta lánveitinga. Stefnt er að gildistöku um næstu áramót en breytingin hefur ekki verið samþykkt. Fækki valkostum þeirra sem veikast standa Hildur sagði verðtryggingu vera úrræði vegna verðbólgu. Lægri greiðslubyrði hefði gert fólki með lítið milli handanna kleift að eignast húsnæði. Stjórnvöld ættu að einbeita sér að því að ná niður verðbólgu. „Mér finnst að ríkisstjórnin ætti að einbeita sér að því í staðinn fyrir að takmarka valkosti fólks sem hefur mögulega enga aðra kosti í stöðunni.“ Hún líkti verðbólgunni við sjúkdóm og verðtryggingunni við meðal. „Það myndi enginn læknir horfa á sjúkdóm og kjósa að gera ekkert í sjúkdóminum en fækka valkostum meðalanna, og sérstaklega gagnvart þeim hópi sem er veikastur.“ Hildur tók fram að hún hefði ekki séð frumvarp og byggði gagnrýnina á áformaskjalinu. Bankarnir hefðu þegar þrengt framboð langra verðtryggðra lána vegna markaðsaðstæðna og því væri sýndarmennska að kynna þakið sem nýja aðgerð. „Verkin tala“ Arna Lára sagði einhvers staðar verða að byrja að draga úr vægi verðtryggingar. „Ég held að þetta sé gott fyrsta skref að hefja þennan leiðangur af því verðtryggingin, hún hefur einhvern veginn fléttað sig inn í alla anga samfélagsins.“ Hún sagði fólk gjarnan horfa á mánaðargreiðslur en síður kostnað yfir allan lánstímann. Mikilvægt væri að stuðla að hraðari eignamyndun og skoða hvaða úrræði gætu stutt þá hópa sem breytingin hefði áhrif á, sérstaklega fyrstu kaupendur. Arna Lára hafnaði því að aðgerðin tæki athyglina frá verðbólgu og vöxtum. „Það að við séum að leggja fram þetta frumvarp er ekkert að taka augun af þeim bolta að ná niður vöxtum og verðbólgu.“ Hún hvatti fólk til að horfa á verk ríkisstjórnarinnar. „Það eru bara verkin sem tala og allt skiptir þetta máli.“ Hildur svaraði að hún horfði einnig á verkin og væri ekki hrifin.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heimatilbúinn Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Sjá meira