Banaslys í Kjós vegna hálkuástands sem erfitt var að sjá fyrir Banaslys sem varð rétt sunnan við brú yfir Laxá í Kjós í nóvember árið 2021 má rekja til hálkuástands sem var erfitt að sjá fyrir. Þá greindust fíkniefni í blóði ökumanns og voru hvorki hann né farþegi bílsins spenntir í öryggisbelti. Dekkjabúnaður bifreiðarinnar, sem var óskoðuð, reyndist ekki í lagi. 20.2.2023 06:53
Boða verkbann á félagsfólk Eflingar Atkvæðagreiðsla um boðun verkbanns á félagsfólk Eflingar hefst í dag meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins. Verði verkbannið samþykkt mega SA banna öllu félagsfólki Eflingar sem starfar eftir samningum við samtökin að mæta til vinnu og fær það þá engin laun. 20.2.2023 06:10
Tíu bestu lögin sem fengu ekki að keppa í Eurovision Íslendingar hafa í gegnum árin verið ansi lélegir í að velja hvaða lag á að keppa fyrir okkar hönd í Eurovision. Atriði sem Evrópa hefur ekki viljað líta við fara út fyrir hönd Íslands á meðan stórkostleg atriði sitja eftir í súpunni. 18.2.2023 07:01
Fréttapar eignaðist sitt fyrsta barn Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir, fréttamaður á RÚV, og Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður á Heimildinni, eignuðust á dögunum sitt fyrsta barn. 16.2.2023 23:20
Bruce Willis með framheilabilun Bandaríski leikarinn Bruce Willis hefur greinst með framheilabilun. Í mars á síðasta ári greindi leikarinn frá því að hann væri hættur að leika þar sem hann væri með málstol. 16.2.2023 22:44
Alls ekki auðveld ákvörðun að fresta aðgerðum Formaður Eflingar segir það hafa verið erfiða ákvörðun að fresta verkfallsaðgerðum stéttarfélagsins. Ákvörðunin sé þó útpæld og nú er búist við „raunverulegum kjarasamningsviðræðum“. 16.2.2023 22:16
Verkfallsaðgerðum frestað Verkfallsaðgerðum Eflingar hjá starfsmönnum Íslandshótela, Berjaya Hotels, Reykjavík Edition, Skeljungs, Samskipa og Olíudreifingu hefur verið frestað á meðan samningaviðræður Eflingar og SA halda áfram. Fulltrúar beggja aðila hafa fundað í húsnæði ríkissáttasemjara í kvöld og tókst að finna flöt til að halda viðræðunum gangandi. 16.2.2023 21:04
Móðir viðmælanda Eigin kvenna í mál við Eddu Falak Móðir konu sem rætt var við í hlaðvarpsþættinum Eigin konur hefur höfðað mál gegn þáttastjórnanda þáttanna, Eddu Falak. Hún vill meina að upptökur sem spilaðar voru í þættinum hafi verið teknar án hennar vitundar. 16.2.2023 20:37
Bergljót Arnalds heimsótt af Owen Hunt Stórleikarinn Kevin McKidd var staddur hér á landi nýlega. Hann heimsótti fyrrverandi bekkjarsystur sína, söngkonuna Bergljótu Arnalds, en saman lærðu þau leiklist í Edinborg í Skotlandi. 16.2.2023 18:14
Forstjóri Regins segir upp Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, hefur óskað eftir því að láta af störfum á næstu mánuðum. Hann hefur gegnt stöðu forstjóra síðan árið 2009. 16.2.2023 17:54