Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Áætlað er að 188 einstaklingar hefðu verið vistaðir í fyrirhugaðri brottfararstöð á síðasta ári ef úrræðið hefði verið til staðar. Þetta er mat heimferðar- og fylgdardeildar ríkislögreglustjóra. Það byggir á tölum yfir fólk sem fylgt var úr landi árið 2025 og hefði mögulega uppfyllt skilyrði lagafrumvarpsins sem er til umræðu í þinginu. 12.3.2026 22:30
Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út norðan og sunnan Holtavörðuheiðar vegna á annan tug ferðalanga sem eru í að minnsta kosti fimm föstum bílum á heiðinni. Þó nokkuð hefur verið um að björgunarsveitir hafi aðstoðað ferðalanga sem hafa fest bíla sína í dag. 12.3.2026 19:37
Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Þó nokkur snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum í dag en ekki er talin hætta í byggð sem stendur. Flateyrarvegi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna snjóflóðahættu. Einnig er varað við aðstæðum á Norðvesturlandi og við Hellisheiði. 12.3.2026 17:03
Kristinn ekki bænheyrður Hæstiréttur mun ekki taka fyrir mál Kristins Jens Sigurþórssonar, fyrrverandi prests í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, gegn Þjóðkirkjunni. Hann fór fram á skaðabætur eftir að prestakall hans var lagt niður árið 2019 og um leið embætti hans. Landsréttur sýknaði kirkjuna af kröfum Kristins í nóvember og vildi hann í kjölfarið áfrýja til Hæstaréttar. 12.3.2026 15:59
Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Hjálmar Friðriksson blaðamaður á Samstöðinni hefur verið sýknaður í Landsrétti af stefnu þriggja fjárfesta og félags þeirra vegna ummæla í fréttum í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023. Fjárfestarnir og félagið þurfa að greiða honum 1,4 milljónir króna í málskostnað. 12.3.2026 15:04
Krakkatía vikunnar: Hundar, kettir og eldingar Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í Krakkatíunni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum. 8.3.2026 06:03
Fréttatía vikunnar: Bíll, belja og Bandaríkjaforseti Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis. 7.3.2026 06:00
Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Lokað var fyrir umferð til suðurs á Kringlumýrarbraut á mörkum Kópavogs og Fossvogs vegna áreksturs í kvöld. Þriggja bíla árekstur átti sér stað á hálum vegarkafla og var keyrt á gangandi vegfaranda. Lögregla stýrir umferð frá brautinni. 5.3.2026 22:36
Eyjólfur færir klukkuna aftur Stöðvarskylda leigubílstjóra var endurvakin með lagabreytingu sem samþykkt var á Alþingi í dag. Þurfa bílstjórar að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gilt starfsleyfi og verður stöðvunum skylt að skrá allar ferðir, þar á meðal upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar, akstursleið og greiðslur farþega. 5.3.2026 22:35
Kynnir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við ESB fer fram Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kynnir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu (ESB) á fundi ríkisstjórnar á morgun. Beint eftir fundinn verður haldinn blaðamannafundur þar sem efnisatriði tillögunnar verða kynnt og dagsetning atkvæðagreiðslunnar. 5.3.2026 18:40