Fréttamaður

Eiður Þór Árnason

Eiður Þór er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og á­rásir enn nær dag­legt brauð

Minnst sex Palestínumenn fórust í árásum Ísraelshers á Gasa í dag, þar á meðal níu ára stúlka. Þá særðust yfir tólf aðrir, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Drónaárás á járnsmiðju í Sabra-hverfinu í Gasaborg varð minnst fjórum Palestínumönnum að bana, að sögn fulltrúa Shifa-sjúkrahússins sem fórnarlömbin voru flutt á.

Búið að opna Holta­vörðu­heiði aftur

Umferð um Holtavörðuheiði er farin að flæða á ný eftir að henni var lokað vegna umferðaróhapps. Löng bílaröð myndaðist á heiðinni. Vegagerðin benti ökumönnum á hjáleið um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði.

Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta

Hversu vel fylgist þú með? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í henni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum.

Tæki­færi fylgi flugi frá Kína en einnig hættur

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirhugaðar flugferðir Air China frá Kína til Íslands breyta miklu. Mögulegt sé að fjöldi kínverskra ferðamanna gæti tvöfaldast á tiltölulega stuttum tíma en þeir mynda nú þegar einn stærsta ferðahópinn hérlendis á vissum árstíma. Á sama tíma muni fjölguninni mögulega fylgja áskoranir, til að mynda í tengslum við fyrirtæki sem fari á svig við íslenskar venjur og regluverk.

Upp­taka evru myndi ekki einungis hafa á­hrif á vexti

Prófessor í hagfræði og fyrrverandi viðskiptaráðherra segir kostnaðinn við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vera háan á Íslandi og talsvert hærri en í nágrannalöndum. Telur hann að þessi kostnaður myndi lækka við upptöku evru þar sem Íslendingar myndu njóta hagkvæmni stórrekstrar í ríkari mæli.

Heil­brigðis­eftir­litið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslu­stöð Hvals

Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands segir að fyrri yfirlýsing um óásættanlega meðhöndlun Hvals hf. á soðvatni hafi byggt á röngum upplýsingum. Fitugildra í vinnslustöðinni virðist virka en unnið sé að því að greina hvort fita og önnur efni séu fjarlægð með fullnægjandi hætti. Myndefni sem fulltrúar Paul Watson-samtakanna segjast hafa tekið í dag sýnir mengun í fjörunni við vinnslustöðina sem heilbrigðiseftirlitið hefur ekki séð áður.

Hluti af þriðja vinningi lenti á Ís­landi

Þátttakandi á Íslandi deildi þriðja vinningi í EuroJackpot kvöldsins með fjórtán öðrum og fékk tæpar tíu milljónir króna í sinn hlut. Enginn var með fyrsta vinning í EuroJackpot í kvöld.

Trump sló harðan tón við upp­haf leið­toga­fundar NATO

Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra.

Sjá meira