Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn

Brynju Dan Gunnarsdóttur hefur verið gert að víkja sem oddviti Framsóknar í Garðabæ. Hún segist hvorki munu taka sæti á lista flokksins í komandi kosningum né styðja flokkinn á nokkurn hátt. 

Á­kvörðunin stærri en nú­verandi ríkis­stjórn

Kjósendur verða að beita eigin dómgreind og kynna sér sjónarmið. Á sama tíma er það skylda stjórnvalda að vanda undirbúning í hverju einasta skrefi. Þessi ákvörðun sé stærri en flokkspólitískir hagsmunir.

Einn réðst á dyra­vörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir á­hrifum

Lögreglan handtók mann í miðbæ Reykjavíkur í nótt þar sem hann hafði ráðist á dyravörð. Við leit á honum fundust fíkniefni en maðurinn hefur verið vistaður í fangaklefa þar til hann er talinn hæfur til skýrslutöku. Fleiri en tíu ökumenn voru stöðvaðir í akstri vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Hvessir á mest­öllu landinu í kvöld

Minnkandi norðvestan- og vestanátt í dag. Snjókoma eða slydda með köflum norðanlands, en styttir upp að mestu þar síðdegis. Næsta lægð er væntanleg inn á Grænlandshaf seint í dag og áhrifa hennar fer að gæta í kvöld og nótt með vaxandi vindi með úrkomu.

Banda­rísk her­flug­vél fórst í Írak

Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks.

Leggja til verðþak vegna olíu­fé­laga sem þyki varla treystandi

„Þegar að heimsmarkaðurinn lækkar, þá virðist verðið svona síga niður eins og það sé verið að sleppa fjöður lausri, en þegar að verð hækkar, þá fer það frekar upp eins og raketta,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifereiðaeigenda. Hann mætti í sett kvöldfrétta Sýnar í kvöld. 

Ný greiningar­að­ferð á endómetríósu í sjón­máli

Nýjar rannsóknir á aðferðum til að greina endómetríósu eru í þróun. Ef allt gengur að óskum verða þær til þess að hér á landi geti fólk fengið greiningu mun fyrr og með miklu minni fyrirhöfn. Í dag eru flestir greindir með uppskurði eða samtali við lækni.

Sjá meira