„Meirihlutanum finnst þetta ekki nógu mikilvægt“ Þrír nefndarmenn fjárlaganefndar þingsins hafa kallað eftir því að nefndin komi saman til að ræða bæði Lindarhvolsmálið og Íslandsbankasöluna. Einn þeirra telur ólíklegt að nefndin verði kölluð saman. Engin viðbrögð hafi borist frá meirihluta nefndarinnar. 10.7.2023 13:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Þrír létust þegar flugvél brotlenti við Sauðahnjúka á Austurlandi síðdegis í gær. Í hádegisfréttum á Bylgjunni verður rætt við aðgerðastjóra Landhelgisgæslunnar sem segir farþegaflugvél Icelandair og ferðaþjónustuþyrlu, auk fisflugvélar, hafa aðstoðað við að staðsetja flugvélaflakið. 10.7.2023 11:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum stöðvar 2 koma til okkar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata og Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokks til að ræða sameinaða stjórnarandstöðu í kröfu um að þing komi saman. 9.7.2023 18:49
Hádegisfréttir Bylgjunnar Stjórnmálafræðingur segir ólíklegt að ríkisstjórnin falli þrátt fyrir stór deilumál. Ákall stjórnarandstöðu um að þing komi saman sé skiljanlegt en snúist meira um ásýnd en annað. 9.7.2023 11:44
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Eldgos er enn ekki hafið á Reykjanesi en kvikan er svo grunnt að ekki er hægt að segja til um nákvæma staðsetningu hennar. Við förum yfir stöðuna á Reykjanesi í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2. 8.7.2023 18:00
Slösuð kona sótt á skjálftasvæðið og margir á vappi Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík fékk útkall klukkan 12:45 vegna konu sem hafði slasað sig á skjálftasvæðinu milli Keilis og Fagradalsfjalls. Aðgerðum lauk um klukkan tvö en mikil umferð ferðamanna er á svæðinu. Fólk er beðið að fara varlega á svæðinu. 8.7.2023 14:50
Leita á náðir stjórnarþingmanna ef Katrín svarar ekki kallinu Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna fimm hafa sent kröfu á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um að þing verði kallað saman á næstu dögum. Þingflokksformaður Viðreisnar segir að verði forsætisráðherra ekki við beiðni stjórnarandstöðunnar muni hún leitast eftir að fá meirihluta þingmanna til að fara fram á slíkt. 8.7.2023 12:09
Hádegisfréttir Bylgjunnar Eldogs er enn ekki hafið á Reykjanesi en kvikan færist hægt nær yfirborðinu. Í hádegisfréttum á Bylgjunni verður rætt við náttúruvársérfræðing sem segir Veðurstofuna og almannavarnir í viðbragðsstöðu. 8.7.2023 11:48
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra segir uppgjör Lindarhvols stórglæsilega niðurstöðu fyrir ríkissjóð. Píratar hafi ekki sett gott fordæmi fyrir þingið með birtingu greinagerðarinnar. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður farið yfir málið með Þorsteini Sæmundssyni, fyrrverandi þingmanni Miðflokksins, sem fjallaði mikið um málið á tíma sínum á Alþingi. 7.7.2023 18:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Fjármálaráðherra segir birtingu Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingmanns Pírata, á greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvolsmálið svokallaða ekki gott fordæmi fyrir þingið. Rætt verður við hann í hádegisfréttum Bylgjunnar en að hans mati vilja þeir sem um málið fjalla aðeins þyrla upp ryki en ekki fjalla um staðreyndir. 7.7.2023 11:42