Skoða hvernig flugvélarflakið verður flutt af vettvangi Þrír fórust þegar flugvél brotlenti við Sauðahnjúka milli Hornbrynju og Hraungarða á Austurlandi síðdegis í gær. Boð úr neyðarsendi flugvélarinnar barst Landhelgisgæslunni eina mínútu yfir fimm í gær og var gerð tilraun til að ná sambandi við flugvélina með öllum leiðum. 10.7.2023 20:24
Farþegaflugvél, ferðaþjónustuþyrla og fisflugvél aðstoðuðu við leit Þrír létust þegar flugvél brotlenti við Sauðahnjúka milli Hornbrynju og Hraungarða á Austurlandi síðdegis í gær. Aðgerðarstjóri Landhelgisgæslunnar segir farþegaflugvél Icelandair og ferðaþjónustuþyrlu, auk fisflugvélar hafa aðstoðað við að staðsetja flugvélaflakið. Minningarstund verður í Egilsstaðakirkju á morgun vegna slyssins. 10.7.2023 11:55
„SFS er augljóslega að túlka málið sér í hag og ég er ósammála þeirri túlkun“ Matvælaráðherra hafnar allri gagnrýni framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og segir hana ekki rétta. Samtökin séu augljóslega að túlka málið sér í hag. Ekki standi til að afturkalla ákvörðunina um að fresta hvalveiðum í sumar. 7.7.2023 23:31
„Stórglæsileg niðurstaða fyrir ríkissjóð“ Fjármálaráðherra segir uppgjör Lindarhvols stórglæsilega niðurstöðu fyrir ríkissjóð. Píratar hafi ekki sett gott fordæmi fyrir þingið með birtingu greinargerðarinnar. Þingflokksformaður Miðflokksins segir svör ráðherra óboðleg. 7.7.2023 20:02
„Ég hef nú ekkert lesið þessa greinargerð sérstaklega“ Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, segir birtingu Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingmanns Pírata, á greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvolsmálið svokallaða ekki gott fordæmi. Að hans mati vilji þeir sem um málið fjalla aðeins þyrla upp ryki en ekki fjalla um staðreyndir. 7.7.2023 14:44
Birtingin breyti litlu og þingið verði áfram í fríi Birgir Ármannsson þingforseti segist ekki átta sig á því hvers vegna Sigurður Þórðarson vill að ríkissaksóknari rannsaki Lindarhvol. Hann gerir ekki ráð fyrir að þing komi saman eða að opinber birting greinargerðar Sigurðar breyti miklu. 6.7.2023 21:01
„Þetta er minn póstur og Birgir getur haldið sínum krumlum af honum“ Lindarhvoll var félag sem stofnað var til að halda utan eignir sem ríkið leysti til sín við uppgjör við föllnu bankana eftir hrun. Félagið seldi síðan eignirnar. Deilt hefur verið um framkvæmdina og var Sigurður Þórðarson settur ríkisendurskoðandi til að skoða málið vegna vanhæfis þáverandi ríkisendurskoðanda. 6.7.2023 19:18
Kunnugleg atburðarás á Reykjanesskaga Búist er við áframhaldandi skjálftavirkni í dag þrátt fyrir að heldur hafi dregið úr henni á Reykjanesskaga í nótt. Jarðelisfræðingur segir atburðarásina kunnuglega. 6.7.2023 12:56
„Það bendir hver á annan og við höfum engin svör fengið“ Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda virðist sem engin endurskoðun eigi sér stað hjá þeim um að leyfa ávísun lyfs til fullorðinna með taugahrörnunarsjúkdómsinn SMA, að sögn Flóka Ásgeirssonar lögmanns FSMA á Íslandi. 5.7.2023 20:20
Svandís endurheimti traust með því að draga ákvörðun sína til baka Traust og trúnaður þarf að ríkja á milli ríkisstjórnarflokkanna til að hægt sé að takast á við þau verkefni sem hún stendur frammi fyrir, segir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Framganga matvælaráðherra við tímabundið bann hennar á hvalveiðum væri bein ögrun við stjórnarsamstarfið 5.7.2023 13:02