Ítrekað bent á að gullhúðun ESB reglna draga úr samkeppnishæfni Samtök iðnaðarins (SI) fagna skipan starfshóps utanríkisráðherra um aðgerðir gegn gullhúðun og telja tímabært að horft verði til samkeppnishæfni Íslands við hvers kyns lagasetningu, hvort sem um ræðir innleiðingu á regluverki Evrópusambandsins í gegnum EES, eða séríslensk lög. Samtökin nefna átta dæmi um gullhúðun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum og vekja athygli á að upptalningin sé ekki tæmandi. 29.2.2024 07:00
Bakslag í væntingar um hraða lækkun verðbólgu og vaxta Fram að nýjustu verðbólgumælingu í morgun, sem sýndi talsvert meiri verðbólgu en greinendur höfðu reiknað með, höfðu skuldabréfafjárfestar í auknum mæli verið farnir að veðja á nokkuð hraða lækkun verðbólgu og vaxta á komandi mánuðum. Verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hækkuðu því skarpt í dag og áhyggjur peningastefnunefndar Seðlabankans af „þrálátri verðbólgu virðast vera að rætast,“ að mati sjóðstjóra. 28.2.2024 16:31
Tilraunaboranir hafnar í Sádi-Arabíu á vegum Reykjavík Geothermal Félag sem Reykjavík Geothermal (RG) á stóran hlut í hefur hafið boranir á 400 metra tilraunaholu í Sádi-Arabíu. Guðmundur Þóroddsson, stjórnarformaður RG, segir að það sé verið að kanna möguleika á að nýta jarðhita til að kæla húsnæði í Sádi-Arabíu. „Þetta er óhemju spennandi verkefni og er eitt af fyrstu skrefunum til að nýta jarðhita þar í landi.“ 27.2.2024 17:48
SFF efast um að frumvarp standist stjórnarskrá og samkeppnisrétt Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa efasemdir um hvort efni frumvarps er varðar rekstraröryggi greiðslumiðlunar standist stjórnarskrá, samkeppnisrétt og EES-rétt. Viðskiptaráð segir mikilvægt að frumvarpið komi ekki til með að fela í sér ríkissmágreiðslumiðlun í beinni samkeppni við aðrar lausnir sem séu í notkun og þróun. 27.2.2024 07:00
Verðmetur Play svipað og í yfirstandandi útboði Jakobsson Capital metur virði hlutafjár Play svipað og gert er í yfirstandandi hlutafjárútboði flugfélagsins. „Helsti munur á Play og Icelandair liggur í rekstrarstöðugleika og fjármögnunaráhættu,“ segir í nýju verðmati, en greinandi telur áætlanir félaganna um að vera með samanlagt yfir 60 flugvélar í rekstri innan fimm ára vera óraunhæfar. 26.2.2024 13:24
Vilja ekki að Kría fjárfesti í erlendum vísisjóðum Framvís, samtök engla og vísifjárfesta, gera alvarlegar athugasemdir við að samhliða sameiningu Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins og sjóðasjóðsins Kríu, fái hinn nýji opinberi sjóður heimild til að fjárfesta í erlendum vísisjóðum. Framvís leggur til að hinn nýji sjóður, Nýsköpunarsjóðurinn Kría, fái ekki heimild til að fjárfesta í einstaka sprotafyrirtækjum í samkeppni við vísisjóði. 16.2.2024 14:28
Skapa þarf traust á skattframkvæmd en hún hefur verið ófyrirsjáanleg Það er til lítils að breyta reglum ef skattayfirvöld beita túlkunum á lagaákvæðum sem samræmast ekki rekstrarumhverfi fyrirtækja í tækni- og hugverkaiðnaði sem er um margt ólíkur öðrum rótgrónari atvinnugreinum, segja Samtök iðnaðarins um fyrirhugaðar breytingar á tekjuskattslögum, sem eiga að einfalda regluverk fyrir erlenda fjárfestingu. „Beiting skattayfirvalda á skattareglum tekur of sjaldan mið af stöðu og raunveruleika sprota- og nýsköpunarfyrirtækja.“ 15.2.2024 18:09
Hlutverk sameinaðs nýsköpunarsjóðs of víðtækt og vilja ekki ríkisforstjóra Á meðal gagnrýni á frumvarp um sameiningu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og sjóðasjóðsins Kríu er að ráðherra skipar forstjóra til fimm ára. Betur færi ef stjórn ráði forstjóra því hún hefur eftirlit með störfum hans. Eins er sagt að hlutverk hins nýja sjóðs sé of víðtækt. „Sögulega séð hafa sjóðir sem eiga að gera allt fyrir alla ekki verið langlífir.“ 15.2.2024 13:34
Hluthafar vilja drífa hlutafjáraukningu Play af Stór hluthafi í Play segir æskilegt í ljósi þess að tilkynnt hafi verið um að til standi að auka hlutafé flugfélagsins að það verði gert á næstu dögum og helst ekki síðar en í þessum mánuði. Til skamms tíma ætti fyrirhugað hlutafjárútboð að leiða til þess að gengi bréfa félagsins haldist niðri en forstjóri Play hefur sagt að hlutafjáraukninguna þurfi ekki á næstu mánuðum til að fjármagna reksturinn. 14.2.2024 14:01
Set velti fimm milljörðum og sett í söluferli Fjölskyldufyrirtækið Set á Selfossi, sem sérhæfir sig í fjölbreyttri starfsemi á lagnasviði, hefur verið sett í söluferli. Set velti um fimm milljörðum króna í fyrra og jukust tekjur um 33 prósent á milli ára. Að auki voru tekjur erlendra félaga innan samsteypunnar samanlagt um 2,5 milljarðar króna árið 2023. 13.2.2024 16:39