Lögmaður Giuffre segir hana ekki munu sætta sig við fjárhagslega sátt Virginia Giuffre mun að öllum líkindum ekki sætt sig við sátt í málinu gegn Andrési Bretaprins ef hún felur aðeins í sér fjárhagslegar skaðabætur. Lögmaður Giuffre segir hana vilja að sannleikurinn verði leiddur í ljós, fyrir sig og aðra þolendur Jeffrey Epstein. 13.1.2022 10:57
Umboðsmaður barna beinir því til HSS að gera úrbætur á sýnatöku barna Salvör Nordal, umboðsmaður barna, hefur sent forstjóra Heilbrigðisstofnun Suðurnesja erindi þar sem því er beint til stofnunarinnar að gera úrbætur á framkvæmd sýnatöku barna vegna Covid-19. 13.1.2022 09:51
Aldrei meira barnaníðsefni fundist á netinu Bresku samtökin Internet Watch Foundation segja árið 2021 hafa verið það versta frá upphafi þegar kemur að barnaníð á netinu. Magn efnis þar sem börn á aldrinum sjö til tíu ára séu misnotuð hafi þrefaldast. 13.1.2022 08:50
Listamannalaunin hækka um 80 þúsund krónur á árinu Listamannalaunin hækkuðu um tæpar 20 þúsund krónur um áramótin, til samræmis við launa- og verðlagshækkun fjárlaga 2022. Þau munu hækka enn meira á árinu vegna ákvörðunar ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra um að hækka framlög til launasjóðs listamanna um 100 milljónir króna. 13.1.2022 07:03
Nær 300 svartfuglar fundist dauðir á Suðausturlandi Á dögunum fannst mikill fjöldi svartfugla dauður á Suðausturlandi. Matvælastofnun hefur ákveðið að láta rannsaka sýni úr fuglunum á Tilraunastöð HÍ að Keldum, meðal annars með tilliti til fuglaflensu. 13.1.2022 06:36
Pallborðið: Hvíslað um kynferðisbrot Hvað mega þolendur og fjölmiðlar segja þegar kemur að kynferðisbrotamálum? Má nafngreina meinta gerendur og hvað gerist þegar enginn vill segja neitt? Um þetta og fleira var rætt í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi sem Hólmfríður Gísladóttir stjórnaði. 12.1.2022 12:59
Enginn af 52 þúsund ómíkron-greindum fór á öndunarvél Ný rannsókn sem náði til 70 þúsund einstaklinga sem greindust með Covid-19 í Kaliforníu bendir til þess að ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar valdi vægari sjúkdóm og styttri innlögnum en önnur afbrigði veirunnar. 12.1.2022 09:08
Sérfræðingar WHO kalla eftir bóluefnum sem veita betri vörn gegn smiti Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar segja ómögulegt að reiða sig á sífelldar örvunarbólusetningar til að takast á við ný afbrigði kórónuveirunnar. Kalla þeir eftir nýjum bóluefnum sem veita betri vernd gegn smiti. 12.1.2022 07:45
Líkamsárás og eignaspjöll á bifreiðum Nóttin virðist hafa verið fremur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ein tilkynning barst um líkamsárás og var gerandinn handtekinn á vettvangi. Þá bárust tvær tilkynningar um eignaspjöll á bifreiðum og bæði mál eru í rannsókn hjá lögreglu. 12.1.2022 06:23
Bretar sem greinast jákvæðir í hraðprófi þurfa ekki lengur að fara í PCR próf Bretar með einkenni Covid-19 þurfa ekki lengur að gangast undir PCR próf eftir að hafa fengið jákvæða niðurstöðu úr hrað- eða heimaprófi. Bresk heilbrigðisyfirvöld segja breytinguna mega rekja til mikillar útbreiðslu og nákvæmni hraðprófanna. 11.1.2022 10:27
Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Innlent