Léttvínið nærri 40 prósentum ódýrara með dönskum sköttum Léttvínsflaska sem kostar 2.100 krónur í Vínbúðinni myndi kosta 1.318 krónur með dönskum sköttum og bjórflaska sem kostar 369 krónur hérlendis myndi kosta 262 krónur. Vodki myndi vera nær 40 prósent ódýrari með sænskum sköttum. 8.12.2021 14:20
Ísteka riftir samningum við þá bændur sem birtust í myndskeiðinu Líftæknifyrirtækið Ísteka hefur rift samningum við bændur sem sýndir voru fara illa með hross við blóðtöku í myndskeiði sem fór í dreifingu á dögunum og vakti mikla athygli. 8.12.2021 12:37
Færri jólatré flutt inn í fyrra og meiri sala á íslenskum trjám Stafafuran er langvinsælasta innlenda jólatréð, að sögn starfsmanns Skógræktarfélags Íslands. Innfluttum jólatrjám fækkaði í fyrra og sala á innlendum trjám jókst. 8.12.2021 11:19
Kostnaður við sýnatökur 2,5 milljarðar króna en verulegar tekjur fengist á móti Kostnaður Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu við sýnatökur vegna Covid-19 frá upphafi kórónuveirufaraldursins nemur um 2,5 milljörðum króna. Á sama tíma hafa tekjurnar numið um 2 milljörðum og eftir standa 460 milljónir sem hafa fallið á ríkissjóð. 8.12.2021 10:21
Ekki fýsilegar aðstæður á Íslandi til að „búa til veður“ „Menn hafa í árhundruð reynt að stjórna veðrinu en það var ekki fyrr en í kringum og eftir seinni heimstyrjöldina að vísindin fóru að taka á sig einhverja mynd,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu hjá Veðurstofu Íslands, um tilraunir manna til að hafa áhrif á veðurfar. 8.12.2021 08:34
Kellogg hyggst ráða 1.400 starfsmenn í stað þeirra sem eru í verkfalli Stórfyrirtækið Kellogg hyggst ráða nýja starfsmenn í stað 1.400 starfsmanna sem hafa verið í verkfalli frá því í október síðastliðnum. Starfsmennirnir höfnuðu á dögunum samningi til fimm ára sem hljóðaði upp á 3 prósenta launahækkun. 8.12.2021 08:29
WHO segir að bóluefnin ættu að veita góða vörn gegn alvarlegum veikindum Tiltæk bóluefni í heiminum ættu að vernda fólk vel gegn alvarlegum veikindum af völdum Omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. Þetta segir Mike Ryan, sem fer fyrir neyðarviðbrögðum hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. 8.12.2021 08:00
Kvöldið og nóttin fjölbreytt og annasöm hjá lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölda fjölbreyttra mála í gærkvöldi og nótt og fór meðal annars í tvær húsleitir vegna fíkniefna. Þá fór hún tvívegis í útkall vegna hávaðakvartana og aðstoðaði vegna slysa og umferðaróhappa. 8.12.2021 06:51
Hyggjast gera foreldrum kleift að fylgjast með Instagram-notkun barna Stjórnendur Instagram hafa greint frá því að í mars á næsta ári verði kynntir til sögunnar valmöguleikar fyrir foreldra til að stjórna notkun barna sinna á samfélagsmiðlinum. Munu þeir meðal annars geta séð hversu löngum tíma barnið hefur varið í smáforritinu og sett notkuninni mörk. 7.12.2021 12:23
44 prósent boðaðra í desember hafa þegar þegið örvunarskammt 85 prósent þeirra sem áttu kost á því að mæta í örvunarbólusetningu fyrir nóvember hafa þegið þriðja skammtinn og 73 prósent þeirra sem gátu mætt í nóvember. Þá hafa þegar 44 prósent þeirra sem eiga kost á að mæta í desember þegar þegið örvunarskammt. 7.12.2021 11:28