Fyrst sviði, þá hósti og svo lungnabjúgur allt að tveimur dögum seinna Brennisteinsdíoxíð getur valdið eringu í húð, slímhúð og efri hluta öndunarfæra. Mikið magn getur valdið svokölluðum lungnabjúg en tveir sólahringar geta liðið þar til hann kemur fram. 9.4.2021 12:35
Þrennt ber að varast; nýja gíga, hraunbrúnir og gasmengun Það er þrennt sem ber að varast á gosstöðvunum; nýja gíga, hrun og undanhlaup á við hraunbrúnir og gasmengun. Þetta kom fram á upplýsingafundi vegna eldgossins í Fagradalsfjalli rétt í þessu. 9.4.2021 11:40
15 prósent Breta nota gæludýranöfn sem aðgangsorð Milljónir Breta nota nöfn gæludýra sem aðgangsorð ef marka má nýja könnun National Cyber Security Centre (NCSC). Könnunin leiddi í ljós að um 15 prósent nota gæludýranöfn sem leyniorð, 14 prósent nafn fjölskyldumeðlims og 13 prósent einhverja markverða dagsetningu. 9.4.2021 09:19
Meta árlegan kostnað við leghálsýnarannsóknir 99 milljónir króna Landspítalinn metur árlegan kostnað við rannsóknir á leghálssýnum um 99 milljónir króna. Þetta kemur fram í kostnaðargreiningu sem spítalinn skilaði heilbrigðisráðuneytinu 15. mars síðastliðinn. 9.4.2021 08:12
Fjórir af milljón gætu fengið blóðtappa: Missti bróður sinn en hvetur fólk samt til að þiggja bólusetningu Systir manns sem lést eftir að hafa fengið sjaldgæfan blóðtappa í heila í kjölfar bólusetningar með bóluefninu frá AstraZeneca, segir hann hafa verið ótrúlega óheppinn og hvetur fólk til að þiggja bólusetningu. 9.4.2021 06:50
Grímulaus og í annarlegu ástandi Lögregla var kölluð til rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi vegna manns í annarlegu ástandi í verslun í miðborginni. Var tekið fram að maðurinn væri grímulaus og lögregla beðin um að vísa honum út þegar á staðinn var komið. 9.4.2021 06:10
Sýktist aftur af nýrri undirtegund breska afbrigðisins Við erum ennþá að sjá talsverðan fjölda smita greinst innanlands en það er gleðilegt hvað margir eru í sóttkví við greiningu, sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi vegna Covid-19 faraldursins sem var að ljúka. 8.4.2021 11:50
Sterk tengsl milli sóttkvíarbrota ferðalanga og smita innanlands Fimmtíu og einn greindist og hátt á þriðja þúsund manns fóru í sóttkví í tengslum við þrjár hópsýkingar sem urðu hér á landi nýlega. Allar komu þær til vegna einstaklinga sem komu til landsins og héldu ekki sóttkví. 8.4.2021 11:30
Hefur skilað tillögum um breyttar aðgerðir en telur þær ekki verða jafn áhrifaríkar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra tillögum um breyttar aðgerðir á landamærunum eftir að Landsréttur vísaði niðurstöðu héraðsdóms um ólögmæti sóttvarnahúsaskyldu frá í gær. Mikilvægt sé að auka eftirlit með fólki sem fari í heimasóttkví við komuna til landsins. 8.4.2021 11:18
„Við getum ekki verið að skilyrða mannréttindi við drastísk inngrip í líkama fólks“ Transfólk sækir sundlaugar sjaldnar en það vildi og raunar íþróttaiðkun almennt, segir Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í borgarstjórn. Hún segir það upplifa að það sé óvelkomið. Um sé að ræða lýðheilsuvandamál. 8.4.2021 10:01