Olíusjóðurinn keypti fyrir um 500 milljónir Norski olíusjóðurinn á um 0,3 prósenta hlut í Arion. Nærri 20 nýir erlendir sjóðir bættust við hluthafahópinn í nýafstöðnu útboði. Flestir keyptu á bilinu 0,5 til 1 prósents hlut, meðal annars sænska eignastýringarfyrirtækið Lannebo Fonder. 4.7.2018 06:00
Studdu ekki brottrekstur forstjórans Tveir stjórnarmenn töldu rétt að bíða þar til yfirtökutilboð Brims í HB Granda var runnið út. Einhugur um ráðningu Guðmundar í forstjórastólinn. Ráðninguna bar mjög brátt að og hún kom stórum hluthöfum í útgerðinni nokkuð á óvart á þessum tímapunkti. 27.6.2018 07:00
Stoðir keyptu í Arion banka fyrir um milljarð Stoðir eru stærstu íslensku einkafjárfestarnir með 0,6 prósent. Skráðu sig fyrir um 100 milljónum hluta en fengu 12 milljónir. Félagið Vogun, sem Kristján Loftsson og fjölskylda stýra, keypti í Arion banka fyrir um 600 milljónir króna. 27.6.2018 06:00
Sáttaviðræðurnar fóru út um þúfur Sáttaviðræður Gamla Byrs og Íslandsbanka fóru út um þúfur. Of mikið ber á milli og telur stjórn Gamla Byrs "óraunsætt“ eins og sakir standa að deilendur nái sáttum. Stjórnin sakar bankann um að reyna að „þreyta“ kröfuhafa Byr 20.6.2018 08:00
Þorsteinn ráðinn framkvæmdastjóri Allianz Þorsteinn Egilsson, svæðisstjóri Icelandair fyrir Norður-Ameríku, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Allianz á Íslandi. 20.6.2018 07:00
Bjóða allt hlutafé Íslenska gámafélagsins til sölu Hluthafar Íslenska gámafélagsins, eignarhaldsfélagið Gufunes og fagfjárfestasjóðurinn Auður I hafa ákveðið að bjóða til sölu allt hlutafé félagsins. 20.6.2018 06:00
Lokahnykkurinn Í fyrsta sinn frá því að allt fjármálakerfið hrundi fyrir tíu árum er íslenskur banki á leið á hlutabréfamarkað. 15.6.2018 10:00