

Ritstjóri
Hörður Ægisson
Hörður er ritstjóri viðskiptamiðilsins Innherja.
Nýjustu greinar eftir höfund

Tekjur Haga minnkuðu um 8,5 prósent fyrsta mánuðinn eftir opnun Costco
Sala í verslunum smásölurisans Haga dróst saman um 8,5 prósent í júnímánuði í krónum talið miðað við sama tímabil í fyrra að teknu tilliti til aflagðrar starfsemi. Þá minnkaði framlegð samstæðunnar um 0,4 prósentustig á milli ára.

Fyrrverandi seðlabankastjórar Írlands og Kýpur veita ráðgjöf um peningastefnu
Patrick Honohan, fyrrverandi seðlabankastjóri Írlands, og Anthanasios Orphanides, sem var seðlabankastjóri Kýpur á árunum 2007 til 2012, munu veita sérstakri verkefnastjórn á vegum íslenskra stjórnvalda ráðgjöf um peninga- og gengisstefnu til framtíðar.

Starfsmönnum gjaldeyriseftirlits fækkað um þriðjung eftir afnám hafta
Um fjórum mánuðum eftir afnám hafta starfa 16 manns í eftirliti Seðlabankans. Ekki verið ákveðið hvort gjaldeyriseftirlitið verði lagt niður en umfang þess tekið til endurskoðunar á næstu mánuðum.

Fjórir stjórnendur LBI fá 370 milljóna bónus vegna uppgjörs Landsbankans
Fimm fyrirframgreiðslur Landsbankans inn á skuldina við LBI skiluðu fjórum stjórnendum LBI að meðaltali um 90 milljónum í bónus. Höfðu enga aðkomu eða áhrif á að skuldabréfin voru greidd upp níu árum fyrr. Umfangsmikið bónuskerfi virkjaðist í desember.

Staðfesta
Á undanförnum mánuðum hafa íslensk stjórnvöld og Seðlabankinn gert ítrekaða atlögu að því að fá eigendur aflandskróna, sem að stærstum hluta eru bandarískir fjárfestingarsjóðir, til að selja krónueignir sínar fyrir gjaldeyri á afslætti miðað við skráð gengi.

Kjarninn tapaði 15 milljónum í fyrra
Vefmiðillinn Kjarninn var rekinn með 14,9 milljóna tapi 2016 sem er svipuð niðurstaða og árið áður þegar afkoman var neikvæð um 16,7 milljónir

Félag Sigurðar Bolla á 9,9 prósent í Kviku eftir kaup á hlut TM í bankanum
Félag í meirihlutaeigu Sigurðar Bollasonar fjárfestis hefur keypt tæplega þriggja prósenta hlut í Kviku banka af Tryggingamiðstöðinni (TM) og á eftir viðskiptin samtals 9,92 prósent í fjárfestingarbankanum.

Ríkasti maður Alaska að kaupa eina stærstu hótelkeðju landsins
JL Properties, sem er í eigu ríkasta manns Alaska, er að ganga frá kaupum á einni stærstu hótelkeðju landsins. Fjárfestingarfélagið Varða Capital gæti keypt um fjórðungshlut á móti bandaríska félaginu. Kaupverðið um 6 milljarðar.

Sigurður Hannesson hættur hjá Kviku banka
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku banka, hefur sagt starfi sínu lausu og mun láta af störfum hjá fjárfestingabankanum í ágúst, samkvæmt heimildum Vísis.

Arctica Finance hagnast um hálfan milljarð
Hagnaður verðbréfafyrirtækisins Arctica Finance á árinu 2016 nam tæplega 500 milljónum króna og jókst um meira en 300 milljónir frá fyrra ári.