Komnir með fleiri stig en í fyrra og eiga enn tíu leiki eftir Með sigrinum á ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum í gær toppaði Fram stigafjölda sinn frá síðasta tímabili. Liðið á enn eftir að spila tíu leiki í Bestu deild karla í sumar. 2.8.2026 11:46
Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Enzo Maresca, nýr knattspyrnustjóri Manchester City, er fullkominn fyrir félagið. Þetta segir króatíski varnarmaðurinn Josko Gvardiol. 2.8.2026 11:06
Casemiro skoraði sjálfsmark í fyrsta heimaleiknum og Messi sneri aftur Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro lék sinn fyrsta heimaleik með Inter Miami í gær en hefði alveg getað beðið um betri frumraun. Lionel Messi sneri aftur, tveimur vikum eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins. 2.8.2026 10:32
NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Fyrrverandi NFL-leikmaðurinn Cam Newton hefur stefnt körfuboltamanninum LaMelo Ball fyrir að borga sér ekki fyrir leigu á lúxusíbúð í hans eigu. Upphæðin nemur 32 milljónum íslenskra króna. 2.8.2026 10:02
Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Arsenal, gaf engin færi á sér er hann var spurður út í áhuga félagsins á Brasilíumanninum Vinícius Júnior hjá Real Madrid. 2.8.2026 09:32
Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var ánægður með sigurinn á ÍBV, 1-2, í Þjóðhátíðarleiknum. Hann hafði ýmislegt við dómgæsluna að athuga og fékk rauða spjaldið undir lok leiks. 1.8.2026 16:57
Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Fram komst upp í 2. sæti Bestu deildar karla með 1-2 sigri á ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum í dag. Framarar voru 0-2 yfir í hálfleik eftir sjálfsmark frá Sigurði Arnari Magnússyni og mark Freys Sigurðssonar úr vítaspyrnu. Vicentor Valor minnkaði muninn úr öðru víti þegar tólf mínútur voru til leiksloka en nær komust Eyjamenn ekki. 1.8.2026 16:15
Frá Keflavík og beint á Parken: „Draumur flestra ungra stráka“ Eftir að hafa aðeins spilað þrettán leiki í Bestu deild karla með nýliðum Keflavíkur var Davíð Helgi Aronsson mættur beint í byrjunarlið Lyngby gegn stórliði FC Kaupmannahafnar á Parken. Þessi nítján ára miðvörður segir að lánsdvalir hjá Njarðvík og Keflavík hafi reynst dýrmætar og hann stefnir á að komast í A-landsliðið eins og frændi hans, Kári Árnason. 31.7.2026 10:03
Uppgjörið: Ilves - Stjarnan 2-1 (5-4 eftir vító) | Úr leik eftir maraþonleik í Finnlandi Þátttöku Stjörnunnar í Sambandsdeildinni er lokið eftir tap fyrir Ilves í vítaspyrnukeppni, 5-4, í seinni leik liðanna í 2. umferðinni í Tampere í Finnlandi í dag. Ilves vann leikinn, 2-1, en Stjarnan var með 1-0 forskot eftir fyrri leikinn í Garðabænum. 30.7.2026 19:10
Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Elias Ellefsen á Skipagötu er besti handboltamaður Færeyja og leikur með stórliði Kiel í Þýskalandi. Yngsti bróðir hans virðist einnig kunna ýmislegt fyrir sér miðað við byrjun hans á EM U-18 ára. 30.7.2026 13:32