„Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Guðmundur Birkir Pálmason, sem betur er þekktur sem áhrifavaldurinn Gummi Kíró, fær blendnar viðtökur vegna erindis sem hann birti nýverið á Instagram-reikningi sínum. Í það minnsta sköpuðust fjörlegar umræður um erindi hans á Facebook-vegg Kára Sturlusonar framleiðanda þar sem erindi hans var greint í þaula. 10.7.2026 13:19
„Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, blæs á sögusagnir þess efnis að hún hafi farið í áfengismeðferð í byrjun sumars. Hún viðurkennir í samtali við Vísi að hún hafi sjálf heyrt kjaftasögur þess efnis, en að hún hafi aldrei farið á Vog enda skáli hún í sínum kokteil hvenær sem henni detti það í hug. 10.7.2026 12:19
Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Esther Guðjónsdóttir, formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga, ritar harðorða grein á Vísi þar sem hún rekur flókna deilu sem á sér stað um veiði í Iðu, sem er ósasvæði Stóru-Laxár og Hvítár. Deilurnar eru harðar og meðal þess sem fram kemur í grein Estherar er að Finnur Harðarson, leigutaki Stóru-Laxár, hafi mátt þola líflátshótanir og líkamsárás. Finnur segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kæra. 9.7.2026 15:00
Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra blandar sér í umræðuna um íslenska fánann, sem hefur verið í deiglunni frá því að tveir ónefndir aðilar tóku sig til og máluðu hann yfir inngildingarfána sem hefur verið við tröppur Grafarvogskirkju. 9.7.2026 11:01
Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala sameinast og tekur ný fasteignasala til starfa í haust. 8.7.2026 12:58
„Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Þjóðin veit varla hvernig hún á að vera nú þegar Magnús Þór Jónsson – betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Megas – er allur. Enda hvernig bera menn sig að við það að kveðja mann sem var „Enfant terrible“ í íslenskum menningarheimi? 7.7.2026 15:33
Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Íslenska landsliðið endaði í 7. sæti á EM í Ríga í Lettlandi í opnum flokki sem þýðir að markmiðið náðist: Þeir eru nú í færum að keppa um sjálfa Bermúda-skálina. 7.7.2026 13:35
Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Ræða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta á stofnfundi Áfram Ísland, samtök sem berjast fyrir Nei-i í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, þykir á sumum bæjum einhver mesta þrumuræða sem haldin hefur verið á Íslandi. 7.7.2026 12:23
Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður telur einsýnt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra veigri sér við að mæta sér í kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB sem fram eiga að fara í lok ágústmánaðar. 3.7.2026 13:20
Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hafði boðið Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrrverandi utanríkisráðherra til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Nú liggur fyrir að Þorgerður kemur því ekki við að mæta. 3.7.2026 12:19