„Arfavitlaus lausn“ að minnka aflann í hverri veiðiferð Formaður Strandveiðifélags Íslands segir að það væri „algjör hörmung“ að minnka leyfilegan heildarafla í hverri veiðiferð á strandveiðum. Hann fagnar bráðabirgðafrumvarpi atvinnuvegaráðherra sem ætlað er að tryggja 48 daga strandveiðitímabil í sumar, en furðar sig á sumum hugmyndum sem viðraðar eru í greinargerð frumvarpsins. 29.5.2025 17:13
Störfum Musk lokið hjá DOGE Elon Musk hefur tilkynnt um það að störfum hans hjá DOGE, hagræðingar- og niðurskurðarstofnun Bandaríkjastjórnar, sé lokið. Donald Trump réði Musk til starfa í 130 daga sem sérstakan ráðgjafa um niðurskurð innan stjórnkerfisins. 29.5.2025 15:17
Drengurinn er kominn í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í dag eftir tíu ára dreng sem búsettur er í Hafnarfirði. Hann er nú kominn í leitirnar. 29.5.2025 14:47
Gróf slagsmál foreldra á fótboltamóti barna reyndust plat Myndband þar sem nokkrar mömmur sjást í grófum slagsmálum á fótboltamóti barna sinna er í mikilli dreifingu á netinu. Komið hefur í ljós að myndbandið er úr sjónvarpstökum fyrir þætti sem verið er að framleiða. 29.5.2025 14:05
Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur Gæsluvarðhald yfir karlmanni um fertugt sem grunaður er um alvarlega líkamsárás í Úlfarsárdal í síðustu viku var framlengt um fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 29.5.2025 11:35
Kynna bráðabirgðarúfærslu á strandveiðunum Atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um strandveiðar sem ætlað er að tryggja 48 daga veiðitímabil í sumar. Í greinargerð frumvarpsins segir að mögulega þurfi að gera breytingar á því magni sem heimilt er að veiða í hverri veiðiferð, til að unnt sé að tryggja 48 daga tímabil. 29.5.2025 11:22
Boða nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Ríkisstjórn Ísrael hefur veitt leyfi fyrir tuttugu og tveimur nýjum landtökubyggðum á Vesturbakkanum í Palestínu. Þar á meðal verða landtökubyggðir, sem þegar hafa verið byggðar upp án leyfis, viðurkenndar af yfirvöldum. 29.5.2025 09:57
Sparnaðurinn bitni á fjölskyldum Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að flokkurinn tali fyrir meiri sveigjanleika og fjölbreytni í leikskólakerfinu, en flokkurinn bókaði gegn ákvörðun meirihlutans um að afnema lengri opnun ákveðinna leikskóla til klukkan 17. Hún segir að sparnaður sem af þessu hlýst ýtist bara yfir á fjölskyldur. 28.5.2025 00:08
Vextir lækka hjá Íslandsbanka Íslandsbanki hefur lækkað vexti á út- og innlánum og taka breytingarnar gildi þriðja júní næstkomandi. Ákvörðunin kemur í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabankans um 0,25 prósent 21. maí síðastliðinn. 27.5.2025 23:47
Frystir Facebook hópinn og rýfur tengsl við Sósíalistaflokkinn Gunnar Smári Egilsson hefur sett þá sem mest hafa tjáð sig á undanförnum dögum inni á spjallsíðunni Rauða þræðinum í einskonar straff. Hann er sjálfur stjórnandi hópsins, sem áður bar nafnið Sósíalistaflokkur Íslands og hefur þjónað sem nokkurs konar spjallvettvangur fyrir kjósendur flokksins og annarra áhugasamra. Gunnar segir að tími sé kominn til að slíta öll tengsl hópsins við flokkinn. 27.5.2025 22:04