Læknir á vettvangi rútuslyssins: „Þetta var ekki fögur sýn“ Fólk sem var um borð í rútunni hlaut skurði og svöðusár þegar það dróst eftir malbikinu og jarðveginum, að sögn læknis sem fór á vettvang. 16.5.2019 23:09
Chelsea Manning send aftur í fangelsi Heimildarmaður Wikileaks hefur neitað að bera vitni fyrir ákærudómstól og hefur þegar afplánað tveggja mánaða fangelsi vegna þess. Manning þarf nú aftur að fara í fangelsi. 16.5.2019 22:28
Árekstur bíls og bifhjóls við Sólfarið Ökumaður bifhjólsins var fluttur á slysadeild en er talinn hafa sloppið nokkuð vel. 16.5.2019 20:58
Heimamenn á dráttarvél komu til bjargar Tveir þeirra sem voru um borð í rútunni sem valt á Suðurlandsvegi lentu undir henni. Dráttarvél af nærliggjandi bæ var notuð til að losa þá. 16.5.2019 20:28
Rafmagni sló út í Hafnarfirði og Garðabæ Háspennubilun hjá HS Veitum var orsök rafmagnsleysisins. 16.5.2019 19:51
Þeir alvarlega slösuðu sagðir með meðvitund Tveir farþegar rútunnar sem valt í Öræfum eru sagðir hafa lent undir henni. 16.5.2019 19:01
Kínverskir ferðamenn í rútunni sem valt í Öræfum Lögreglan á Suðurlandi segir nú að fjórir séu alvarlega slasaðir. Kínverska sendiráðið segir að fólkið sé ekki lífshættulega slasað. 16.5.2019 17:41
Grænn samfélagssáttmáli lagður fram í tvíriti á Alþingi Tillögur Pírata og Samfylkingarinnar um grænan samfélagssáttmála voru lagðar fram hvor í sínu lagi í dag. Báðar vísa í stefnuskjal demókrata í Bandaríkjunum. 15.5.2019 23:21
Ríkisstjóri staðfestir stranga þungunarrofslöggjöf Alabama Alabama verður nú með ströngustu þungunarrofslögin í Bandaríkjunum. Nær öruggt er talið að lögin komi til kasta dómstóla, jafnvel Hæstaréttar Bandaríkjanna. 15.5.2019 22:59
Unglingar sem skutu skólafélaga í Colorado ákærðir Dómarinn í máli tveggja unglinga sem skutu samnemendur í Highlands Ranch ákvað að réttað yrði á bak við luktar dyr og að leynd myndi hvíla yfir gögnum málsins. 15.5.2019 21:50