Forsetinn sigraði hæsta tind landsins Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, gerði sér lítið fyrir og komst á topp Hvannadalshnjúks, hæsta tind landsins, í nótt. 13.6.2017 07:33
Brutust inn hjá Eimskipum við Sundahöfn Fimm menn sem grunaðir eru um húsbrot voru handteknir á athafnasvæði Eimskips við Sundahöfn í nótt. Þeir voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar í nótt vegna rannsóknar innbrotsins. 13.6.2017 07:24
Rússar sagðir geta hakkað raforkukerfi Spilliforrit sem rússneskir hakkarar beittu gegn Úkraínu í desember er sagt geta valdið rafmagnsleysi í Bandaríkjunum með nokkrum breytingum. 12.6.2017 14:20
Trump stefnt fyrir dómstólum vegna spillingar Forsetinn er sakaður um meiriháttar brot á ákvæðum stjórnarskrárinnar sem banna embættismönnum að taka við gjöfum eða greiðslum frá erlendum ríkiserindrekum í stefnu dómsmálaráðherra Maryland-ríkis og Columbia-svæðis. 12.6.2017 13:37
Sigmundur Davíð segir vogunarsjóðina sigurvegara kosninganna Fyrrverandi forsætisráðherra fullyrðir að erlendir vogunarsjóðir og fjármálakerfið hafi unnið kosningarnar síðasta haust og sakar núverandi ríkisstjórn um u-beygju gagnvart sjóðunum í aðsendri grein í Morgunblaðinu. 12.6.2017 10:18
Nýr umhverfisráðherra reyndi að fjarlægja loftslagsbreytingar úr námsskrá Michael Gove, sem hefur verið skipaður nýr umhverfisráðherra Bretlands, reyndi að fjarlægja umfjöllun um loftslagsbreytingar úr námsskrá breskra skóla fyrir fjórum árum. Nýr samstarfsflokkur Íhaldsflokksins í ríkisstjórn er einnig sagður uppfullur af afneiturum loftslagsvísinda. 12.6.2017 09:49
Trump frestar heimsókn til Bretlands af ótta við mótmæli Útlit er fyrir að ekkert verði af opinberri heimsókn Donalds Trump til Bretlands. Bandaríkjaforseti er sagður hafa sagt breska forsætisráðherranum að hann vildi ekki koma ef fjöldamótmæli fara fram gegn honum. 12.6.2017 08:46
Bandalag Macron fékk um þriðjung atkvæða Nýr flokkur Emmanuel Macron hlaut þriðjung atkvæða í fyrri umferð frönsku þingkosninganna í gær og gæti náð afgerandi meirihluta í þinginu. Sósíalistaflokkur fráfarandi forseta galt afhroð og tapar hátt í 200 þingsætum. 12.6.2017 08:11
Tvísýnt með þingmeirihluta Íhaldsflokksins Íhaldsflokkurinn fær flesta þingmenn á breska þinginu en óvíst er hvort að hann nái hreinum meirihluta samkvæmt útgönguspá sem birtist í breskum fjölmiðlum kl. 21. 8.6.2017 21:13
Katar ætlar ekki að leggja árar í bát Utanríkisráðherra Katar segir þarlend stjórnvöld ekki ætla að lúffa fyrir nágrannaríkjum sínum þrátt fyrir viðskiptaþvinganir. Erindrekar sem reyna að miðla málum segja að markmiðið þessa stundina sé að koma í veg fyrir að samskipti arabaríkjanna versni ekki enn frekar. 8.6.2017 19:58