Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. október 2026 20:58 Af Biminieyju Bahamaeyja. Getty Bresk kona lést á Bahamaeyjum eftir að hafa reynt að bjarga tveimur sonum sínum þegar sterkur straumur bar þá frá landi. Eiginmaður hennar segir hana hafa haldið í annan drenginn þar til honum var bjargað en þá ekki haft orku til að bjarga sér sjálfri.
Leanne Gregory var að snorkla ásamt fjölskyldu sinni við eyjuna Bimini á þriðjudag þegar drengirnir voru gripnir af straumnum. Báðum börnunum var bjargað úr sjónum en ekki tókst að bjarga móður þeirra, að því er breska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglunni á Bahamaeyjum. Missirinn ólýsanlegur Nathan Gregory, eiginmaður hennar, segir missinn ólýsanlegan fyrir fjölskylduna. „Hún var hreinasta og ótrúlegasta eiginkona, móðir og vinkona sem gengið hefur á þessari jörð,“ skrifaði hann á Facebook. Hann sagði eiginkonu sína hafa verið æskuástina sína og sálufélaga. Þau höfðu verið saman í 22 ár. „Strákarnir mínir þurftu að verða vitni að einhverju sem enginn, á hvaða aldri sem er, ætti að þurfa að sjá. En þeir vita að mamma þeirra dó sem algjör hetja.“ Hetja í lífi og dauða Nathan hefur stofnað söfnun til stuðnings sonum þeirra eftir slysið. Þar lýsir hann því hvernig Leanne hafi haldið í annan drenginn þar til björgun barst. Hann segist þakklátur fyrir að synir þeirra hafi komist lífs af. „Ég verð bara að vera þakklátur fyrir hetjuna sem hún var, bæði í lífi og dauða.“ Lögreglunni á Bahamaeyjum barst tilkynning skömmu eftir klukkan tíu að staðartíma á þriðjudag um meðvitundarlausa konu við ferjubryggjuna á North Bimini. Leanne hafði þá verið flutt þangað úr sjónum og var endurlífgun reynd á henni. Hún var síðan flutt á heilsugæslustöð þar sem hún var úrskurðuð látin.
Bahamaeyjar Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira