Mannskæð sprengjuárás á lúxushóteli Að minnsta kosti fjórir fórust og ellefu slösuðust í sprengjuárás á lúxushóteli í pakistönsku borginni Quetta í kvöld. 21.4.2021 23:30
209 milljóna tap Ríkisútvarpsins Ríkisútvarpið tapaði 209 milljónum króna eftir skatta á árinu 2020, samkvæmt rekstrarreikningi sem kynntur var á aðalfundi í dag. Afkoma Ríkisútvarpsins sé þannig neikvæð í fyrsta sinn frá árinu 2014 vegna kórónuveirufaraldursins. 21.4.2021 22:34
Þingfundi frestað enn einu sinni Þingfundi sem hefjast átti klukkan 21:30 hefur nú verið frestað til klukkan eitt. Fundinum hafði áður verið frestað til 23 og síðan aftur til miðnættis. Afgreiðsla frumvarps heilbrigðisráðherra um sóttvarna- og útlendingalög í velferðarnefnd hefur dregist á langinn og útlit fyrir að umræða um frumvarpið á þingi standi fram á nótt. 21.4.2021 22:04
Leyndi kaupendur ólöglegum framkvæmdum og þarf að greiða tíu milljónir í bætur Seljandi fasteignar í Reykjavík upplýsti kaupendur hússins ekki um að breytingar sem hann hafði ráðist í væru gerðar í óleyfi. Kaupendurnir stefndu seljandanum eftir að sáttafundir mistókust og kröfðust bóta vegna galla á húsinu og tapaðra leigutekna. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á mánudag seljandann til að greiða kaupendunum rúmar tíu milljónir í bætur. 21.4.2021 21:35
Friðrik Dór bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar Friðrik Dór Jónsson, tónlistarmaður og Hafnfirðingur, er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2021. Friðrik, einnig þekktur sem Frikki Dór, var sæmdur titlinum við hátíðlega athöfn í bænum í dag. 21.4.2021 20:51
Þessi sóttu um stöðu lögreglustjórans á Norðurlandi vestra Átta umsóknir bárust um embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra sem auglýst var laust til umsóknar 27. mars síðastliðinn. 21.4.2021 20:08
Gerir fastlega ráð fyrir að frumvarpið taki „þónokkrum breytingum“ í kvöld Sigríður Á. Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins gerir fastlega ráð fyrir að frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á sóttvarnar- og útlendingalögum verði taki þónokkrum breytingum í meðförum velferðarnefndar í kvöld. 21.4.2021 19:53
Rússar á Íslandi mótmæla fyrir utan sendiráðið Boðaður mótmælafundur Rússa á Íslandi hófst klukkan 19 í kvöld fyrir utan rússneska sendiráðið við Túngötu í Reykjavík. Efnt er til fundarins vegna meðferðar rússneskra stjórnvalda á Alexei Navalní, einum helsta andstæðingi Vladimírs Pútíns, Rússlandsforseta. 21.4.2021 19:29
Drónamyndband sýnir lúxussnekkjuna í allri sinni dýrð á Akureyri Ein stærsta snekkja í heimi, sem ber nafnið Sailing Yacht A og er í eigu rússneska auðjöfursins Andrey Melnichenko, hefur nú verið á Akureyri í viku. Drónamyndband, sem tekið var af snekkjunni við bæinn í gær og nálgast má neðst í fréttinni, sýnir skipið í allri sinni dýrð. 21.4.2021 18:50
Fluttir á bráðamóttöku eftir tvö vinnuslys Tveir voru fluttir slasaðir á bráðamóttöku eftir tvö vinnuslys á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þá var lögregla einnig kölluð út vegna umferðaróhappa. 21.4.2021 18:01