Áhersla á innflytjendur í nítján liða „tímamótaáætlun“ Tæpum einum og hálfum milljarði verður veitt í aðgerðir til bjargar íslenskunni næstu þrjú ár. Aðgerðirnar eru þær umfangsmestu sinnar tegundar sem ráðist hefur verið í, að sögn menningarráðherra. Rík áhersla verður lögð á íslenskukennslu innflytjenda. 29.11.2023 12:51
Niðurfellingar skulda og vaxta séu í skoðun Forsvarsmenn stóru viðskiptabankanna þriggja líta svo á að þau úrræði sem þeir hafi þegar boðið Grindvíkingum séu aðeins byrjunin; frekari aðgerða sé að vænta, að sögn formanns efnahags- og viðskiptanefndar sem fundaði með bankastjórum í morgun. Frekari niðurfellingar skulda og vaxta séu í skoðun. 21.11.2023 11:47
Líður eins og „algjörum svikara” á Iceland Noir Breski leikarinn Richard Armitage segir að sér líði eins og algjörum svikara að vera stillt upp með heimsklassarithöfundum á Iceland Noir. Margir hafi efast um ritfærni hans og útgefandi hans meira að segja lagt til að hann notfærði sér leigupenna. Við settumst niður með Armitage og ræddum fyrstu skáldsöguna, jarðhræringar í Grindavík og íslenska jólahefð sem hann ætlar að tileinka sér. 18.11.2023 07:00
Upplýsingafulltrúi væri kærkomin viðbót hjá MAST Forstjóri Matvælastofnunar segir að ný skýrsla Ríkisendurskoðunar, þar sem ýmsar athugasemdir eru gerðar við starfsemi stofnunarinnar, varpi fyrst og fremst ljósi á viðvarandi fjárskort MAST. Stofnunin muni taka ábendingar í skýrslunni til sín, sem gefi mögulega tilefni til þess að endurskoða þörf á upplýsingafulltrúa. 17.11.2023 11:54
Ofbauð að Clinton fengi sviðið og afboðaði komu sína Skipuleggjendur bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir eru miður sín vegna umræðu sem skapast hefur í kringum komu bandarísku stjórnmálakonunnar Hillary Clinton á viðburð tengdan hátíðinni. Þeir benda þó á að hátíðin snúist um bókmenntir - ekki pólitík. Rithöfundur sem hætti við að koma fram á Iceland Noir vegna afstöðu Clintons til vopnahlés á Gasa segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að sniðganga hátíðina. 16.11.2023 14:10
Aldrei séð slíkar skemmdir með eigin augum Erlendir fréttamenn við Grindavík sem fréttastofa tók tali segjast aldrei hafa orðið vitni að slíkum atburðum áður. Mikill áhugi sé á atburðunum utan landsteinanna. Bæta mætti upplýsingagjöf. 15.11.2023 14:21
„Þetta tekur mjög á“ Anna Lára Guðnadóttir freistar þess að komast inn til Grindavíkur að sækja muni fyrir systur sína. Hún er kvíðin og stressuð að sjá hvert ástandið á húsinu er. Systir hennar fór út úr húsinu allslaus á föstudag. 15.11.2023 12:59
Blöskrar skipulagsleysi: „Þetta mun aldrei verða samt aftur“ Jón Pálmar Ragnarsson og Helga Rut Hallgrímsdóttir, íbúar í Grindavík, hafa reynt fjórum sinnum að ná í nauðsynjar á heimili sitt í bænum án árangurs. Þau gefa skipulagi viðbragðsaðila falleinkunn. 15.11.2023 11:36
Þula, Yrja og Þengill bíði eftir að þeim sé hleypt út Fulltrúar dýraverndunarsamtaka biðu í allan dag við lokunarpóstinn á Suðurstrandarvegi eftir leyfi til að fara inn í Grindavík en fengu það ekki. Dýrfinna og Kattholt hafa kortlagt staðsetningu dýra í bænum, safnað búnaði og fengið lykla að húsum eigenda til að bjarga dýrunum. 12.11.2023 22:02
„Maður er núna bara að vinna og halda haus og svo grátum við“ Konur sem sóttu nauðsynjar á heimili sín í Grindavík voru ánægðar með hvernig gekk þó tíminn hefði verið naumur. Þær sögðu Grindvíkinga í áfalli en fólk reyndi bara að halda haus. Þær eru hrærðar yfir samhug Íslendinga. 12.11.2023 19:24