Óvissan um að missa Grindavík það langversta Íbúar Grindavíkur sem biðu þess að komast inn í bæinn sinn til þess að ná í nauðsynjar með viðbragðsaðilum í Þórkötlustaðahverfi voru eðli málsins samkvæmt misbrattir þegar fréttastofa tók þá tali nú síðdegis. Einn segist ekki halda að hann muni sjá húsið sitt aftur. 12.11.2023 17:07
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Jörð hefur haldið áfram að skjálfa á Reykjanesi í dag en virknin færst norður. Enn eru taldar miklar líkur á eldgosi. Við setjumst niður með Magnúsi Tuma Guðmundssyni prófessor í jarðeðlisfræði í myndveri í beinni útsendingu og förum yfir stöðuna. 11.11.2023 18:20
Atburðir gærkvöldsins óvæntir: Töluvert gjóskufall myndi fylgja gosi í sjó Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir að atburðir gærkvöldsins hafi verið óvæntir. Kvika hafi hlaupið suður og líkurnar á gosi, mögulega úti í sjó hafi aukist. 11.11.2023 11:03
Grindvíkingar enn að jafna sig á skjálftariðunni í morgunsárið Fjöldahjálparstjóri hjá Rauða krossinum segir að 75 manns hafi gist í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Kórnum í Kópavogi sem opnuð var vegna rýmingar í Grindavík. 11.11.2023 10:23
Allt það helsta um rýminguna: Íbúar loki gluggum og aftengi rafmagnstæki Rýming er hafin í Grindavík vegna kvikugangs sem gæti myndast undir bænum. Almannavarnir biðla til íbúa að koma sér burt úr bænum innan fáeinna klukkustunda, fyrir klukkan þrjú í nótt. Öllum í Grindavík er skylt að yfirgefa heimili sín. 10.11.2023 23:38
Hlakkar alls ekki í Þorvaldi í kvöld Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að stutt sé í eldgos á Reykjanesi; það sé frekar spurning um klukkustundir en daga að hans mati. Þá er hann ekki þeirrar skoðunar að hann hafi verið of djarfur í greiningu sinni á atburðum síðustu daga. 10.11.2023 22:27
„Þetta er bara alveg vonlaust!“ Næsta sumar verða allar plastflöskur með áföstum tappa, samkvæmt áformum umhverfisráðuneytisins. Við ræddum við neytendur, sem segja áföstu tappana ýmist hræðilega - eða sjálfsagða viðleitni til að bjarga jörðinni. 6.11.2023 11:07
Lögreglukonur áreittar af samstarfsmönnum en karlarnir af konum úti í bæ Kynferðisleg áreitni innan lögreglunnar hefur aukist talsvert síðasta áratug, samkvæmt nýrri rannsókn. Stór hluti lögreglukvenna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi; oftast af hendi karlkyns samstarfsmanna eða yfirmanna. Verkefnastjóri hjá Ríkislögreglustjóra segir embættið taka niðurstöðurnar mjög alvarlega. 4.11.2023 21:01
Engum lækni datt í hug að hún væri ólétt Átján ára stúlka, sem fór ítrekað til læknis vegna magaverkja og var send í röntgenmyndatöku og ristilspeglun, kveðst reið og pirruð út í heilbrigðiskerfið eftir að í ljós kom að hún var ófrísk - og komin sex mánuði á leið. 1.11.2023 10:06
Nýfarinn að þora út í fullum skrúða heima á Selfossi Sigurður Ragnarsson, Siggi Ragnars, er einn litríkasti rútubílstjóri landsins - í orðsins fyllstu merkingu. Hann mætir til vinnu í jakkafötum í öllum regnbogans litum á hverjum degi. Við hittum Sigga í Íslandi í dag í gær og fórum með honum á rúntinn. 26.10.2023 11:21