Daniel Day-Lewis segir skilið við leiklistina Leikarinn Daniel Day Lewis hefur leikið sitt síðasta hlutverk. Í tilkynningu frá talskonu leikarans í dag segir að hann hafi sagt skilið við leiklistina fyrir fullt og allt. 20.6.2017 22:31
Ragga Gísla flutti glænýtt Þjóðhátíðarlag Tónlistarkonan Ragnhildur Gísladóttir semur og flytur Sjáumst þar, Þjóðhátíðarlagið í ár, en hún er jafnframt fyrsta konan sem fengin er til að semja Þjóðhátíðarlag. 20.6.2017 21:57
Uber bætir þjórfé við þjónustu sína Farþegum leigubílaþjónustunnar Uber býðst nú að greiða bílstjórum þjónustunnar þjórfé í gegnum smáforrit fyrirtækisins. Uber kemur þar til móts við bílstjóra sína en þeir hafa lengi barist fyrir því að geta innheimt þjórfé við aksturinn. 20.6.2017 20:54
Framleiðsla Bachelor in Paradise hefst á ný eftir ásakanir um kynferðisbrot Framleiðendur þáttanna Bachelor in Paradise segja engan þátttakanda í þættinum hafa hagað sér illa eða verið nokkurn tímann í hættu við tökur á þættinum. Framleiðslu þáttanna var hætt á dögunum eftir að þátttakandi sakaði meðspilara sinn um kynferðisofbeldi. 20.6.2017 19:49
Þota Bandaríkjahers skaut niður íranskan dróna Bandarísk herþota skaut niður dróna, sem framleiddur var í Íran, í suðurhluta Sýrlands. Drónanum var stýrt af hersveitum hliðhollum sýrlensku ríkisstjórninni. 20.6.2017 18:30
Daníel Arnarsson nýr framkvæmdastjóri Samtakanna '78 Daníel Arnarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Samtakanna '78. Hann mun taka við af fráfarandi framkvæmdastjóra samtakanna, Helgu Baldvinsdóttur, í ágúst næstkomandi. 20.6.2017 17:25
Miles Teller handtekinn fyrir ölvun á almannafæri Leikarinn Miles Teller var handtekinn fyrir ölvun á almannafæri á sunnudag. Lögregla í San Diego í Kaliforníu í Bandaríkjunum staðfestir handtökuna en Teller þvertekur sjálfur fyrir hana. 19.6.2017 23:57
Trump fordæmir stjórnvöld Norður-Kóreu vegna andláts Warmbier Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir stjórnvöld Norður Kóreu „hrottaleg“ í kjölfar frétta af andláti Otto Warmbier. Þá vottaði forsetinn fjölskyldu Warmbier einnig samúð sína. 19.6.2017 23:18
Múslimastúlka myrt á leið heim af bænastund Nabra Hassanen, sautján ára unglingsstúlka, fannst látin á sunnudag en tilkynnt hafði verið um hvarf hennar þá um morguninn. Darwin Martinez Torres er grunaður um morðið en lögregla rannsaka það ekki sem hatursglæp. 19.6.2017 22:33
Sean Spicer sagður eiga von á nýrri stöðu innan Hvíta hússins Sean Spicer, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, er sagður munu taka við nýrri stöðu í Bandaríkjastjórn innan skamms. Hann mun því líklega ekki standa mikið lengur fyrir daglegum fjölmiðlafundum. 19.6.2017 21:25