Yoko Ono gerð að meðhöfundi lagsins Imagine Yoko Ono verður gerð að meðhöfundi lagsins Imagine en lagið er eitt vinsælasta lag eiginmanns hennar, Johns Lennon heitins. Tilkynning um ákvörðunina var send út í New York í Bandaríkjunum í gær. 15.6.2017 11:45
Tíu vilja stýra Skaupinu Ríkisútvarpinu bárust 10 umsóknir um framleiðslu á Áramótaskaupinu 2017. Umsóknarfrestur rann út síðastliðinn mánudag en að sögn dagskrárstjóra sjónvarpsins tekur nú við úrvinnsla umsóknanna. Stefnt er að því að ljúka samningum um mitt sumar en þetta er í fyrsta skipti sem hægt er að sækja um framleiðslu Skaupsins í opnu ferli. 15.6.2017 10:30
Sérsveitin oftar en ekki á Þjóðhátíð Sérsveitarmenn lögreglu hafa oft verið fengnir til aðstoðar við eftirlit á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þeir hafa þó ekki komist til þess undanfarin 3-4 ár en yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum segir lögreglu þar alltaf óska eftir aðstoð þeirra um verslunarmannahelgi. Þá hefur sérsveitin verið fengin með lögreglu í útköll vegna gesta Þjóðhátíðar. 14.6.2017 17:00
Arðgreiðslur Bláa lónsins námu tæpum 1,5 milljarði króna Á aðalfundi Bláa lónsins í dag var samþykkt 13 milljón evra arðgreiðsla til hluthafa fyrirtækisins sem nemur um 1,45 milljarði króna. Þá var hagnaður Bláa lónsins eftir skatta um 23,5 milljónir evra eða um 2,6 milljarðar íslenskra króna árið 2016. 14.6.2017 15:03
Háttsettur bandarískur þingmaður skotinn á hafnaboltaæfingu Þingmaður fulltrúadeildar bandaríska þingsins, Steve Scalise, var skotinn á hafnaboltaæfingu í Virginíu-fylki í Bandaríkjunum í dag. 14.6.2017 12:08
Umsóknum um kennaranám fjölgaði um 30 prósent milli ára Umsóknum um grunnskólakennaranám í Háskóla Íslands fjölgaði um 30 prósent milli ára. Þá er viðskiptafræði enn vinsælasta grein innan skólans og mikil aukning varð í umsóknum um nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun. Þetta kemur fram í frétttilkynningu frá Háskóla Íslands. 14.6.2017 11:01
Vodkaframleiðandi notfærir sér tengsl Trump við Rússland Vodkaframleiðandinn Smirnoff notfærir sér nú meint tengsl Bandaríkjaforseta, Donalds Trump, við Rússland í nýrri auglýsingaherferð. 13.6.2017 15:43
Ísfirskir krakkar selja ferðamönnum lambaknús Fjórir ísfirskir krakkar, sem nýkomnir eru í sumarfrí, hófu í dag að bjóða ferðamönnum að „hitta lömb og faðma þau“ fyrir 100 íslenskar krónur – eða 1 Bandaríkjadal. Móðir tveggja barnanna segir þau hafa hugsað sér gott til glóðarinnar þegar þau sáu skemmtiferðaskip, fullt af ferðamönnum, sigla í höfn á Ísafirði í morgun. 13.6.2017 14:30
Útlit fyrir regnhlífaveður á 17. júní Útlit er fyrir einhverja rigningu á öllu landinu á þjóðhátíðardaginn sem haldinn verður hátíðlegur næstkomandi laugardag. Gestir tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice, sem hefst á fimmtudag og stendur fram á sunnudag, geta því einnig átt von á nokkurri vætu. 13.6.2017 13:00
150 þúsund nýir meðlimir sagðir hafa gengið í Verkamannaflokkinn 150 þúsund nýir meðlimir eru sagðir hafa gengið í breska Verkamannaflokkinn í kjölfar nýafstaðinna kosninga. Flokkurinn bætti þar við sig sögulegum fjölda þingsæta. 11.6.2017 16:46