Fyrstu 757-þotu Íslendinga lagt eftir 33 ára þjónustu Fyrstu Boeing 757-þotunni sem Íslendingar eignuðust, TF-FIH, hefur núna verið lagt, eftir 33 ára þjónustu hjá Icelandair. Engin flugvélartegund hefur þjónað íslenskum flugfarþegum jafn lengi og þessi. 4.4.2024 21:07
Stefnir í að bið eftir jarðgöngum lengist Ófærðin sem birtist vegfarendum á fjallvegum á norðurhelmingi landsins um páskana, þar sem þúsundir manna komust ekki leiðar sinnar, hefur kallað fram endurnýjaðar kröfur um jarðgöng. Óvissa ríkir hins vegar um hvernig jarðgangaáætlun verður fjármögnuð og stefnir í að í flestum landshlutum þurfi menn að bíða lengi eftir næstu göngum. 2.4.2024 22:10
Styttist í að Nuuk fái nýjan alþjóðaflugvöll Flugvallafélag Grænlands, Kalaallit Airports, hefur formlega gefið út opnunardag nýs alþjóðaflugvallar í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Stóri dagurinn verður eftir átta mánuði, 28. nóvember 2024. Þetta er fimm árum eftir að flugvallargerðin hófst og meira en árs seinkun frá upphaflegri áætlun. 1.4.2024 07:27
Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Bæjarstjóri Þórshafnar í Færeyjum, Heðin Mortensen, vill hefja undirbúning að gerð nýs alþjóðaflugvallar í Færeyjum. Ummælin féllu í viðtali við Kringvarpið í vikunni í framhaldi af vandræðum sem fraktflugfélagið FarCargo glímir við að nýta Vogaflugvöll til fiskflutninga með Eysturoy, Boeing 757-þotu félagsins. 29.3.2024 08:48
Kvika undir Öskju heldur áfram að þrýsta sér upp Eldstöðin Askja sýnir merki um að hún sé að búa sig undir gos. Þar varð skjálftahrina í gær og Veðurstofan sendi í dag frá sér tilkynningu um að landris haldi þar áfram. 26.3.2024 22:22
Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Væntingar um tugmilljarða loðnuvertíð eru fyrir bí. Loðnubrestur virðist staðreynd. 21.3.2024 22:22
Ætti að vera í kirkju en skoðar hraunið í staðinn „Það er sunnudagur. Maður ætti að vera í kirkju, en svo er maður hér,“ segir Olgeir Sigmarsson, jarðvísindamaður hjá jarðvísindastofnun Háskóla Íslands í samtali við fréttastofu þegar hann var staddur við hraunjaðarinn ásamt fleiri vísindamönnum að safna sýnum úr hrauninu sem hefur runnið síðan í gærkvöldi. 17.3.2024 18:17
Gerir ráð fyrir löndun í Grindavík á morgun Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs Grindavíkur og lögreglumaður, segist ekki sjá ástæðu til annars en að halda sig við áætlanir um löndun inni í Grindavík á morgun. Hann skynji bjartsýni meðal bæjarbúa og segir bjarta framtíð framundan. 17.3.2024 12:41
Segja umbrotum við Grindavík geta lokið innan eins til tveggja mánaða Hópur jarðvísindamanna við Háskóla Íslands, með prófessorana Þorvald Þórðarson og Ármann Höskuldsson í fararbroddi, segir kvikuinnflæði inn undir Svartsengi hafa helmingast frá því í seinni hluta desember. Þeir segja að haldi þessi þróun áfram með sama hraða gætu umbrotin á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur tekið enda innan eins til tveggja mánaða. 16.3.2024 13:00
Spá því að umbrotum við Grindavík ljúki síðsumars „Við teljum að nú liggi fyrir vísindagögn, sem leyfa okkur að áætla hvenær kvikuhreyfingum og gosum lýkur í Sundhnúks gígaröðinni,“ segja jarðvísindamennirnir Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur og Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur í sameiginlegri grein sem birt er á eldfjallabloggi Haraldar. Niðurstaða þeirra, sem þeir kalla einfalda spá, er að umbrotunum við Grindavík ljúki síðsumars árið 2024, eftir fjóra til fimm mánuði. 14.3.2024 14:44