Loðnutekjur af Íslandsmiðum redda grænlenskum flugvelli Væntanlegur loðnugróði Grænlendinga af Íslandsmiðum veldur því að íbúar stærsta bæjar Suður-Grænlands fá loksins nýjan flugvöll. Þar var tíðindunum fagnað með söng og flugeldasýningu á dögunum. 13.12.2021 20:40
Orkustjórar í ritdeilu um raforkuskort Stjórnendur tveggja stærstu orkufyrirtækja landsins, Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur, eru komnir í opinbera ritdeilu á Vísi um raforkuskort í landinu. Þetta eru þeir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, og Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri vatnsafls hjá Landsvirkjun. Bæði fyrirtækin eru alfarið í opinberri eigu; Landsvirkjun í eigu ríkisins en Orkuveitan að mestu í eigu Reykjavíkurborgar. 11.12.2021 14:28
Íslenska olíuleitarfélagið Eykon Energy lagt niður Eykon Energy ehf., það íslenska félag sem lengst stóð að olíuleit á Drekasvæðinu, er hætt starfsemi. Eigendur þess ákváðu í mars á þessu ári að slíta félaginu. 9.12.2021 13:26
Elliðaárstöð stendur ónotuð á tíma raforkuskorts í landinu Á sama tíma og kvartað er undan raforkuskorti í landinu vekur athygli að heil virkjun skuli standa ónotuð og það innan borgarmarka Reykjavíkur. Þetta er Elliðaárstöðin en forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur sagði fyrir ári að engin þörf væri á meiri orku. 8.12.2021 22:16
Segir sorglegt að loðnubræðslur þurfi að skipta úr raforku í olíu Fulltrúi fiskimjölsiðnaðarins segir það áfall og sorglegt að loðnubræðslur þurfi núna að skipta yfir í olíu í stað rafmagns. Málið var rætt í ríkisstjórn í morgun. 7.12.2021 21:41
Segir raforkuskerðingu mikið áfall í upphafi loðnuvertíðar Ákvörðun Landsvirkjunar um að skerðing raforku til loðnuverksmiðja taki strax gildi er mikið áfall, að sögn formanns Félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda, sem segir þetta þýða óhemju notkun á olíu. Tilkynningin kom sama dag og loðnuvertíðin hófst fyrir alvöru. 7.12.2021 12:16
Búa sig undir að flugumferð raskist ef gýs í Grímsvötnum Flugmálayfirvöld búa sig undir að eldgos í Grímsvötnum geti valdið verulegum truflunum á flugumferð, bæði hérlendis og víðar í Evrópu. Eldstöðin er komin á appelsínugula viðvörun gagnvart alþjóðaflugi, sem táknar vaxandi líkur á gosi. 6.12.2021 20:40
Eldstöðin Grímsvötn sett á appelsínugula viðvörun Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörunarstig vegna Grímsvatna úr gulum lit í appelsíngulan lit fyrir alþjóðflug, sem táknar vaxandi líkur á eldgosi. Þetta var gert klukkan níu í morgun eftir jarðskjálftahrinu í eldstöðinni fyrr um morguninn. 6.12.2021 10:33
Mæðgin úr Bitrufirði sitja þrjá tíma á dag í skólabíl Strákurinn og mamma hans á bænum Þambárvöllum við Bitrufjörð gætu verið þau sem búa við lengstan skólaakstur allra á Íslandi um þessar mundir. Þau verja þremur klukkustundum á dag í skólabílnum. 2.12.2021 22:22
Gígjukvísl orðin tíföld og grannt fylgst með merkjum um gosóróa Hlaupið úr Grímsvötnum brýst núna fram á Skeiðarársandi með vaxandi þunga og var vatnsrennsli í Gígjukvísl í dag orðið tífalt miðað við árstíma. Veðurstofan segir í tilkynningu nú síðdegis að vísindamönnum komi saman um að Grímsvötn séu tilbúin að gjósa. Engin merki hafa þó enn sést um eldsumbrot. 2.12.2021 20:55