Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey af­hjúpuð

Risastór stytta af Maríu mey, sem talin er vera sú hæsta í Evrópu, var vígð á laugardag í litlu pólsku þorpi. Styttan er 56 metra há. Bæjaryfirvöld vonast til þess að minnisvarðinn verði mikilvægur pílagrímastaður og ferðamannastaður. Útsýnispallur er byggður inn í stall styttunnar.

„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“

Hópur Korpúlfa, sem er félag eldri borgara í Grafarvogi, ætlar að hlaupa saman í Reykjavíkurmaraþoninu. Hópurinn safnar fyrir félaginu og félagsstarfinu sem þau skipuleggja. Formaður segir mikilvægt að halda fólki í virkni eftir að það hættir að vinna og mikil áhersla sé lögð á það hjá Korpúlfi að fólk geti fundið sér eitthvað við hæfi.

Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla

Breyta á skipulagi við Laugarnesskóla til að tryggja umferð gangandi og hjólandi við skólann og nýtt skólaþorp. Foreldrar kölluðu eftir viðbrögðum borgaryfirvalda síðasta vetur eftir að ekið var á tvö börn á Reykjavegi, skammt frá skólanum og nýju skólaþorpi. 

„Þessa van­líðan þekkir enginn nema að hafa upp­lifað hana“

Sesselja Hreinsdóttir missti son sinn, Þorlák Inga, fyrir um fimm árum. Þorlákur Ingi var 21 árs þegar hann lést í sjálfsvígi jólin 2020. Sesselja segir missinn hafa markað líf sitt og hún hafi lært mikið á þessum fimm árum. Það mikilvægasta sé að enginn takist á við slíkan missi og slíka sorg einn. Hver og einn þurfi samt sem áður að finna sín eigin bjargráð og sinn takt í sorginni.

„Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“

Þórhildur Ólöf Helgadóttir forstjóri Póstsins segir alþjónustu sem Pósturinn á að tryggja á Íslandi kostnaðarsama. Alþingi verði að svara því hversu langt eða stutt fólk eigi að þurfa að fara til að sækja óst. Hún segir það hafa færst verulega í aukana að fólk fái pakka í póstbox. Pósturinn tilkynnti um gjaldskrárhækkanir um síðustu mánaðamót.

Um­ferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vana­lega

Umferð um Flókalund á Vestfjörðum var 430 prósentum meiri en vanalega. Á sama tíma jókst umferð aðeins um 1,5 prósent á Strandarheiði og var minni en á venjulegum degi við Gauksmýri. Töluverð umferð var á Vesturlandi og Vestfjörðum í gær vegna almyrkva síðdegis.

Há­tíðin Kveld­úlfur í annað sinn um helgina

Tónlistarhátíðin Kveldúlfur verður haldin í annað sinn um helgina. Hátíðin fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram.

Sjá meira