Risavaxin mörgæs slær í gegn Risavaxinn mörgæsarungi sem gengur undir nafninu Pestó er nýjasta stjarna dýragarðsins í Melbourne í Ástralíu. 23.9.2024 21:30
Um 500 látin í árásum Ísraela á Líbanon Alls eru 492 nú látin í loftárásum Ísraela á Beirút í Líbanon. Þar af eru 35 börn og 58 konur. Frá þessu er greint í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu í Líbanon. Þá hafa 1654 særst í árásunum. Ísraelski herinn segist hafa skotið á 1.300 skotmörk síðasta sólarhringinn sem tengjast Hezbollah samtökunum. 23.9.2024 21:01
Magnaðar myndir af lengstu á landsins Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis myndaði Þjórsá með dróna í gær. Myndirnar eru hluti af langtímaverkefni í vinnslu Vilhelms sem hann kallar „Lengsta áin á Íslandi“. Vilhelm hefur síðustu ár ferðast um landið til að mynda ánna og lífið við hana. 23.9.2024 20:02
Jódís fer fram gegn Guðmundi Inga í varaformann VG Jódís Skúladóttir þingkona Vinstri grænna gefur kost á sér í embætti varaformanns Vinstri grænna sem fer fram á landsfundi flokksins þarnæstu helgi. Jódís fer þannig fram gegn sitjandi formanni, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, sem tilkynnti fyrr í dag að hann ætli sér ekki að sækja eftir embætti formanns en vilji vera varaformaður, líkt og hann var. 23.9.2024 18:24
Söfnuðu um níu milljónum í minningu Bryndísar Klöru Minningarsjóði Bryndísar Klöru Birgisdóttur var í dag afhent um níu milljónir króna sem söfnuðust í annars vega kertasölu og hins vegar í áheitahlaupi skólasystkina hennar. Í tilkynningu kemur fram að tæpar sjö milljónir hafi safnast í kertasölunni og um 1,4 í áheitahlaupinu. Forseti Íslands er verndari sjóðsins og tók við peningunum í dag fyrir hönd sjóðsins. 23.9.2024 16:42
Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Mæðgurnar María Sveinsdóttir og Inga Rún Snorradóttir vinna saman á móttökugeðdeild fíknimeðferðar á Landspítalanum. María segir starf sitt á deildinni hafa haft áhrif á uppeldi barna sinna og viðhorf til fíknisjúkdómsins. Báðar segja þær starfið á deildinni hafa mikil áhrif á líf sitt og þær ákvarðanir sem þær taka. 21.9.2024 07:03
Búið að taka sýni úr ungu birnunni Búið er að taka ýmis sýni úr hvítabirninum sem var felldur í gær. Næst á dagskrá er að greina sýnin til að komast að því hvort hann hafi borið með sér einhverja sjúkdóma og til að komast að því af hvaða stofni hann var. Hvítabjörninn var kvendýr og var um 163 sentímetrar að lengd. 20.9.2024 13:59
Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Borgarráð samþykkti í gær að koma á árlegum námsstyrk í nafni Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur lögfræðings og fyrrum sviðsstjóra og borgarritara. Ellý lést í júní á þessu ári og var þá 59 ára gömul. Ellý greindist með forstigseinkenni Alzheimersjúkdómsins 51 árs. 20.9.2024 13:40
Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Karlmaður fannst látinn í gærkvöldi sem lögreglan hafði leitað við Vík í Mýrdal frá því á mánudag. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að rannsókn fari fram hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Maðurinn fannst látinn við Reynisfjall seint í gær. 20.9.2024 12:44
Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp Tekin verða sýni úr hvítabirninum sem var felldur í gær og hann svo settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp. Þorvaldur Þór Björnsson hamskeri hjá Náttúrufræðistofnun segir miður að það hafi ekki verið hægt að halda dýrinu lifandi en það hafi ekkert annað verið í stöðunni. 20.9.2024 09:55