Töf á viðgerð á vatnslögninni vegna veðurs Slæmt veður hefur hamlað viðgerðarvinnu á vatnslögn til Vestmannaeyja. Það kemur fram í tilkynningu frá Slökkviliði Vestmannaeyja. Þar kemur fram að mikil vinna hafi verið lögð í að festa vatnslögnina. Vinnan hafi gengið vel en ekki eins hratt og áætlanir hafi gert ráð fyrir, vegna veðurs. 8.12.2023 16:15
Enginn kennari náði öllu réttu á prófi í talmáli unglinga Tveir nemendur í 9. bekk í Dalskóla, Sveinbjörg Lára Kristjánsdóttir og Þórhildur Freyja Erlingsdóttir, bjuggu til próf og lögðu fyrir bæði kennara og starfsfólk skólans í vikunni. Prófið heitir Nú til dags íslenska og er þar verið að kanna þekkingu á talmáli og slangri unglinga í dag. Enginn náði öllu réttu. 8.12.2023 12:21
Stjórnmálamenn þurfi að hætta að „fikta í mikilvægustu innviðunum“ Sérfræðingar í menntavísindum segja vandann að baki niðurstöðum PISA könnunarinnar margþættan. Það hafi verið gerðar miklar og tíðar breytingar á menntakerfinu en einnig verði að líta til breytinga innan heimila. Þá sé ekki sé hægt að líta framhjá stöðu íslenskunnar. 7.12.2023 15:19
Lýsa eftir konu sem ók Skoda með barn í bílnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ökumanni dökkblárar Skoda stationbifreiðar og vitnum af umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Faxafens í gær um klukkan 18.30. Þar var ekið á mann á rafskútu. 7.12.2023 11:16
Afhendir fyrsta jólakortið á leiðinni í dag Göngugarpurinn Einar Skúlason hefur lokið um þriðjungi göngu sinnar fjórum dögum eftir að gangan hófst á mánudag, eða alls um 74 kílómetra. Hann ætlar sér að ganga 280 kílómetra frá Seyðisfirði til Akureyrar, svokallaða póstleið, á tveimur vikum. 7.12.2023 10:56
Enn stefnt að lokun áfangaheimilis Samhjálpar Starfsemi áfangaheimilisins Brúar verður hætt í janúar á næsta ári. Áfangaheimilið er rekið af Samhjálp og er staðsett við Höfðabakka. Greint er frá lokuninni í Morgunblaðinu í dag og rætt við framkvæmdastjóra Samhjálpar, Eddu Jónsdóttur. Félagsþjónusta Reykjavíkur ætlar að tryggja heimilisfólki húsaskjól. 7.12.2023 09:13
Fimm sveitarfélög sektuð fyrir að nota Google skýjalausn í skólastarfi Fimm sveitarfélög hafa verið sektuð af persónuvernd fyrir að nota skýjalausn Google með röngum hætti í grunnskólastarfi. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir málið alvarlegt og að margvíslega hafi verið brotið á persónuverndarlöggjöfinni. 6.12.2023 15:52
Minni líkur á eldgosi en fleiri kvikuhlaup enn líkleg Líkur á eldgosi yfir kvikuganginum sem myndaðist 10. nóvember hafa minnkað verulega. Enn er önnur hætta áfram til staðar á umbrotasvæðinu. Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og er líklegt að atburðarásin endurtaki sig. 6.12.2023 15:10
Ákveðnar sprungur mögulega varðveittar Bæjarráð Grindavíkur ákvað á fundi sínum í gær að fresta viðgerð á ákveðnum sprungum í bænum. Það verði ákveðið síðar hvort að þeim verði leyft að vera sem einskonar minnisvarða um náttúruhamfarirnar þann 10. nóvember síðastliðinn. 6.12.2023 11:45
Áfram verði „stórt gat“ í rekstri fjölmargra bænda Samtök ungra bænda segja aðgerðir ráðherra til að mæta efnahagsvanda bænda ekki nægjanlegar. Í yfirlýsingu fagna samtökin aðgerðunum en segja að þótt þeim væri öllum hrint í framkvæmd sé ljóst að „áfram verði stórt gat í rekstri fjölmargra bænda“. Bændasamtökin taka undir þetta. 6.12.2023 09:09