Segir reynsluna úr atvinnulífinu hafa skipt sköpum fyrir sigurinn Guðrún Hafsteinsdóttir, nýr formaður Sjálfstæðisflokksins, segir nauðsynlegt að nýta tímann í stjórnarandstöðu til að líta inn á við. Sjálfstæðisflokkurinn eigi að vera stærri og breiðari fylking. Hún vill koma flokknum „aftur í bílstjórasæti íslenskra stjórnmála“. Ný forysta fái það hlutverk að endurhugsa starf flokksins. 3.3.2025 09:12
Vilja valdefla konur í brjóstagjöf Á dögunum kom út fyrsta íslenska bókin sem fjallar um brjóstagjöf. Í bókinni er að finna ýmis ráð við þekktum vandamálum, reynslusögur og skýringarmyndir. Höfundar bókarinnar eru Ingibjörg Eiríksdóttir Hildur A. Ármannsdóttir, Þórunn Pálsdóttir, Hulda Sigurlína Þórðardóttir og Hallfríður Kristín Jónsdóttir. Allar eru þær ljósmæður, hjúkrunarfræðingar og brjóstagjafaráðgjafar. 2.3.2025 07:01
Amma gerandans svarar ákalli föður Bryndísar Klöru Dagný Hængsdóttir Köhler, amma drengsins sem banaði Bryndísi Klöru Birgisdóttur á menningarnótt í fyrra, segist vilja svara kalli föður Bryndísar Klöru og gerast riddari kærleikans. Dagný kallar eftir því í aðsendri grein að betur sé hugað að börnum sem upplifa áföll. Dóttursonur hennar og dóttir hafi bæði upplifað áföll sem hafi markað líf þeirra og gjörðir. Hún vilji ekki draga úr ábyrgð eða afsaka, heldur stuðla að breytingum. 1.3.2025 08:02
Nokkrar staðsetningar til skoðunar fyrir skóla Hjallastefnunnar Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, segir borgina vinna að því með Hjallastefnunni að tryggja að skólastarf haldi áfram í leik- og grunnskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík næsta haust. Nokkrar staðsetningar eru til skoðunar fyrir starfsemi skólans. 28.2.2025 11:46
Foreldrar hvattir á neyðarfundi skólans til að flytja börnin Kennarar og foreldrar barna í Hjallastefnunni í Reykjavík voru í gær kölluð á neyðarfund vegna mögulegrar fyrirhugaðrar lokunar skólans. Á meðan fundi stóð hafði fulltrúi frá borginni samband og sagði meirihlutann hafa fundað um málið. Foreldrar og kennarar vilja varanlegt húsnæði. Skólinn sé alveg sprunginn eins og hann er. 28.2.2025 08:54
„Það eru svo margir sem ekki vita hvað fatlaðir ganga í gegnum“ Átak, félag fólks með þroskahömlun, frumsýndi í vikunni myndband með þeirra eigin endurgerð af laginu Hjálpum þeim. Lagið er hluti af vitundarvakningu um stöðu, framlag og réttindi fatlaðs fólks. 28.2.2025 07:03
Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Sýningin Volcano Express opnar í Hörpu á laugardaginn, 1. mars. Á sýningunni fær fólk innsýn í eldvirknina á Íslandi. Gestir sitja í hreyfisætum og finna á meðan sýningunni stendur fyrir krafti jarðskjálfta, fá tilfinningu fyrir flugi og falli og skynja bæði hita hraunsins og kulda íslenska vetrarins. 27.2.2025 12:31
Þjónusta fólk sem reykir ópíóíða og vímuefni í ómerktum bíl Reykur, skaðaminnkandi þjónusta, opnaði í febrúarmánuði. Í Reyk getur fólk sem reykir ópíóíða og örvandi vímuefni fengið skaðaminnkandi þjónustu og stuðning. Reykur er opinn tvö kvöld í viku og fer þjónustan fram í fólksbíl sem er ekið hvert sem þjónustunnar er þörf á höfuðborgarsvæðinu. Fólk á landsbyggðinni getur sótt þjónustuna í gegnum síma. 27.2.2025 08:35
Leggjast aftur yfir myndefnið Formaður Nefndar um eftirlit með lögreglu segir nefndarmenn ekki hafa heyrt orðfæri lögreglumanna við mótmæli í Skuggasundi í maí í fyrra. Til standi að fara aftur yfir myndefni úr búkmyndavélum og skoða málið betur. 26.2.2025 11:19
Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu Hópur sem segir sig fyrrverandi aðdáendur Eurovision skorar á RÚV að beita sér fyrir því að KAN, ísraelska ríkisfjölmiðlinum, verði vikið úr Eurovision árið 2025. Hópurinn sendi bréf á útvarpsstjóra í vikunni. Tæp fjögur þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista til að mótmæla þátttöku Íslands í Eurovision á meðan Ísrael er leyft að taka þátt. 26.2.2025 06:46