Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Lovísa Arnardóttir skrifar 2. júlí 2026 09:13 Deilibílnum var ekið á göngustígum í gegnum Fossvogsdalinn þar sem maðurinn var handtekinn. Aðsend Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti.
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á stöð 1, segir í samtali við fréttastofu að maðurinn hafi verið handtekinn eftir glæfraakstur í Fossvogsdal. Maðurinn hafi ekið götur, göngustíga og farið yfir göngubrú við Kringlumýrarbraut til að komast inn í Fossvogsdalinn. Sjá einnig: Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Í dagbók lögreglu í morgun kom fram að maðurinn hafi enda reynt að komast undan á fæti en hann svo stöðvaður og handtekinn eftir stuttan spöl. Ásmundur segir hann einan grunaðan um innbrotið. Hann hafi verið einn í bílnum. Tilkynnt var um innbrotið um klukkan 20.30 að sögn Ásmundar. Hámarkssekt 250 þúsund Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík, segir skýrt að ef umferðarlög eða skilmálar fyrirtækisins hafi verið brotnir verði maðurinn sektaður. Upphæð sektar fari eftir eðli brotsins en hámarksupphæð sé 250 þúsund. Hún segir allar ferðir raktar en Hopp skoði ekki ferðir nema það sé grunur um brot og það sé að beiðni lögreglunnar. „Við erum ekki að fylgjast með því hvað almennir borgarar gera,“ segir hún en ef lögregla biðji um aðstoð við að rekja ferð geti Hopp sótt slík gögn.
Lögreglumál Deilihagkerfi Reykjavík Bílaleigur Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira