Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Á aðalfundi Eyri Invest hf. í gær samþykktu allir hluthafar félagsins tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa. Endurgjald lækkunarinnar er í formi hlutabréfa í JBT Marel Corporation og Fræ Capital hf. Feðgarnir Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson, stofnendur félagsins, eru nú einu hluthafar félagsins með jafnan eignarhlut. 28.3.2025 10:29
Vara við þjófum sem dulbúa sig sem ferðamenn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við þjófum sem hafa verið á ferðinni á miðborgarsvæðinu undanfarna daga. Þeir eru sagðir vera erlendir ríkisborgarar og herja á ferðamenn og hafa borist tilkynningar um slík mál við Hallgrímskirkju og nágrenni hennar. 28.3.2025 09:59
Skoða hvort hægt sé að flýta uppbyggingu í Úlfarsárdal Nýr starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar og verkalýðsfélaganna BSRB og ASÍ á að skoða nýjar leiðir til þess að auka framboð og hraða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík. Hópurinn á að skila sínum tillögum í maí. Starfshópurinn mun skoða sérstaklega hvort hægt sé að flýta uppbyggingu í Úlfársárdal auk þess sem hann á að kortleggja helstu möguleika á uppbyggingu næstu 10 til 15 árin. 28.3.2025 09:47
Svara auknum fordómum og fáfræði með jákvæðni og list Listamarkaðurinn Litrófan verður haldinn í fyrsta sinn á laugardaginn í húsnæði Borgarbókasafnsins í Grófinni. Vinirnir Elísabet Jana Stefánsdóttir og Kjartan Valur Kjartansson skipuleggja markaðinn sem er sérstaklega fyrir hinsegin og skynsegin listamenn. Þau segja markaðinn sitt svar við auknum fordómum og fáfræði gegn jaðarsettum hópum. 28.3.2025 07:02
Lovísa Ósk nýr listdansstjóri Íslenska dansflokksins Lovísa Ósk Gunnarsdóttur hefur verið skipuð í embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins. Logi Einarsson, M-menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur skipað hana í embættið frá og með 1. ágúst næstkomandi. Í tilkynningu stjórnarráðsins kemur fram að alls hafi borist átta umsóknir um starfið. 27.3.2025 13:51
Bannað að heita Gríndal og Illuminati Íslendingar mega nú, samkvæmt nýjustu úrskurðum mannanafnanefndar, heita Thiago, Vetle, Dilla, Anteo, Ránar og Heli. Á sama tíma hafnaði nefndin því að fólk megi heita Gríndal og Illuminati. Nýir úrskurðir voru birtir í vikunni. 27.3.2025 13:03
Verðbólga heldur áfram að hjaðna Verðbólga mælist nú 3,8 prósent og hefur ekki verið minni frá því í desember árið 2020 þegar hún mældist 3,6 prósent. Vísitala neysluverðs hækkar um 0,37 prósent á milli mánaða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. 27.3.2025 10:01
Kynna nýjan rektor í dag að loknu kjöri Seinni umferð rektorskjörs í Háskóla Íslands stendur nú yfir en kosið er á milli Magnúsar Karls Magnússonar, prófessors við Læknadeild, og Silju Báru R. Ómarsdóttur, prófessors við Stjórnmálafræðideild. Kjörfundi lýkur klukkan 17 í dag. 27.3.2025 09:08
Fjarlægja plasthanska af dælum og gefa fjölnota í staðinn Orkan fjarlægir næsta miðvikudag, 2. apríl, alla plasthanska af bensíndælum sínum. Í staðinn stendur öllum viðskiptavinum Orkunnar til boða að fá fjölnota dæluhanska sem hægt er að nota til að dæla. Ákvörðunin er byggð á umhverfissjónarmiðum. 27.3.2025 08:51
Óboðlegt að borgin haldi foreldrum í óvissu lengur Foreldrar skóla- og leikskólabarna Hjallastefnunnar í Reykjavík munu á morgun koma saman í ráðhúsi Reykjavíkur til að mótmæla þeirri óvissu sem enn stendur um framtíð skólastarfsins í Reykjavík. Núverandi húsnæði skólans er sprungið og hefur skólinn beðið svara frá borginni um staðsetningu fyrir framtíðarhúsnæði um árabil. 26.3.2025 21:01