Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Utanríkisráðuneytið hefur lagt til að opnað verði sendiráð Íslands í Madríd á Spáni. Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, segir ákall frá Íslendingum sem þar búa og þangað ferðast um að þeim sé betur sinnt. 25 Íslendingar létust á Spáni 2022 og þúsundir búa þar. 16.5.2024 08:53
Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Nú þegar fyrstu úthlutun leikskólaplássa er lokið í Reykjavík lítur út fyrir að um 800 börn verði á biðlista þann 1. september. Af þeim eru 548 þeirra 12 til 17 mánaða og 255 18 mánaða og eldri. Inn í þessum tölum eru 40 börn sem bíða en eru með pláss á sjálfstætt starfandi leikskóla. 15.5.2024 23:07
Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, hefur óskað eftir því að fulltrúar Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála og ríkislögreglustjóra komi á fund allsherjar- og menntamálanefndar til að ræða um brottvísun þriggja nígerískra kvenna í fyrradag. Konurnar hafa allar lýst því að vera þolendur mansals. 15.5.2024 15:00
Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá hefur nú hrint af stað nýrri herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina: Ekki taka skjáhættuna. Fólk er hvatt til að setja símann á akstursstillingu þannig hann trufli ekki við akstur. 15.5.2024 11:24
Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Ísland er einn af hástökkvurunum Regnbogakorts ILGA-Europe, regnhlífarsamtaka yfir 700 hinsegin félaga í Evrópu og Mið-Asíu í ár, og fer upp í annað sæti úr því fimmta. Í tilkynningu kemur fram að Ísland uppfylli nú um 83 prósen af þeim viðmiðum sem ILGA-Europe setur. 15.5.2024 10:01
Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Nýir fatagámar Sorpu eru nú framleiðslu og munu koma til landsins í byrjun júní. Sorpa tekur við fatasöfnun af Rauða krossinum í byrjun júní. Lítill hluti þess sem er safnað hérlendis selst innanlands. Greint var frá því fyrr í gær að slæm umgengni væri við gámana víða um borg. 15.5.2024 08:57
Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Seint í gær var fjórum nígerískum ríkisborgurum vísað úr landi. Einn þeirra var hinn tvítugi Precious Felix Tanimola. Hann hefur verið á Íslandi í um tvö ár, var með atvinnuleyfi og er giftur íslenskri konu. Eiginkona hans segir brottvísun hans mikið áfall. 14.5.2024 20:58
Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Talskona Stígamóta segir íslenska ríkið brjóta alþjóðasáttmála með því að vísa þolendum mansals úr landi og tryggja ekki öryggi þeirra á viðkomustað. Fjórum nígerískum ríkisborgurum, þar af þremur konum, var flogið til Frankfurt seint í gær. Fulltrúar Stígamóta vinna að því að tryggja öryggi þeirra. 14.5.2024 12:02
Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Fjórum nígerískum ríkisborgurum, þar af þremur konum, var flogið af landi brott seint í gær. Auk þeirra var einn karlmaður með í för. Öll höfðu þau fengið endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd á Íslandi. 14.5.2024 09:26
Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Guðbjörg Rut Pálmadóttir flokkunarstjóri í Fataverkefni Rauða krossins segir slæma umgengni við fatagámana hafa aukist mikið síðustu ár. Fjallað hefur verið um það í hverfagrúppum á Facebook síðustu daga að fatagámar séu fullir og búið að tæta úr pokum. Sorpa tekur við söfnun textíls úr fatagámum í júní. 14.5.2024 06:47