Sjö herbergjum lokað á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli Það blæs ekki byrlega fyrir hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli því þar stendur til að loka sjö hjúkrunarrýmum í nýrri álmu heimilisins. Ástæðan er sú að ekki fæst rekstrarfé frá ríkinu fyrir rýmin sjö. 27.2.2021 19:46
Hveragerði, Ölfus og Árborg keppast um nýja íbúa „Við erum bara í heilbrigðri samkeppni um hver er bestur“, segir bæjarstjóri Hveragerðisbæjar en mikil fjögun íbúa á sér nú stað í Hveragerði, Árborg og í Ölfusi en allt eru þetta nágranna sveitarfélög, sem keppst um að fá nýtt fólk til sín. 21.2.2021 15:26
Vilja ekki lögþvingaða sameiningu sveitarfélaga Um tuttugu sveitarfélög víðs vegar um landið hafa tekið sig saman og mótmælt lögþvinguðum sameiningum sveitarfélaga. Sveitarfélögin vilja að íbúarnir ráði sjálfir hvort sameinað verði eða ekki. 20.2.2021 19:20
Loksins, loksins fá Sunnlendingar menningarsal Sunnlendingar eru nú að fara að eignast sinn eigin menningarsal, sem hefur þó staðið fokheldur í 35 ár. Salurinn er í Hótel Selfossi og mun rúma um þrjú hundruð manns í sæti. Nú þegar er búið að tryggja tæplega 500 milljónir króna til að ljúka verkefninu. 20.2.2021 12:29
Sauðfjárbóndi skammar sauðfjárbændur „Sauðfjárbændur hafa gloprað niður allri sinni markaðssetningu með kjötið sitt og eru því í þeirri stöðu sem þeir eru í dag“ segir sauðfjárbóndi á Suðurlandi. Svínakjöt selst nú í fyrsta skipti betur en lambakjöt. 18.2.2021 20:05
Kisan Bella rúntaði um 150 kílómetra í vélarhúddi bíls Kötturinn Bella fór óvænt í hundrað og fimmtíu kílómetra ökuferð um Suðurland eftir að hún fór inn í vélarhúdd á bíl og var þar í sólarhring. Hún fannst þegar eigandi bílsins fór að setja rúðuvökva á bílinn. 16.2.2021 20:59
Varalitur er staðalbúnaður í hesthúsinu og á hestbaki Varalitur og helst mikið af honum er staðalbúnaður hjá Katrínu Stefánsdóttur, 75 ára hestakonu í Þorlákshöfn en hún segist aldrei fara út í hesthús eða á hestbak nema með varalit. 14.2.2021 20:11
Svefnlausir starfsmenn dýrir vinnuveitendum sínum Það er allt of algengt að fólk komi þreytt og illa sofið í vinnuna, sem er dýrt fyrir atvinnurekendur því þá er meiri hætta á mistökum hjá starfsfólki og að það lendi í slysum. Þá taki svefnlausir starfsmenn 100% fleiri veikindadaga heldur en þeir sem sofa vel. Þetta segir svefnráðgjafi, sem segir ekkert jafnast á við góðan svefn. 14.2.2021 14:46
Ný kirkja byggð í Odda og Sæmundarstofa Mikil uppbygging er framundan á Odda á Rangárvöllum því þar á að fara að byggja nýja kirkju og Sæmundarstofu til heiðurs „Sæmundar Fróða“. Oddi var á öldum áður eitt mesta höfðingja- og menntasetur á Íslandi og þar ólst upp meðal annarra Snorri Sturluson. 13.2.2021 12:23
Þrífættur hundur Tíkin Zenta er magnaður hundur á bænum Árbæjarhjáleigu í Holtum í Rangárþingi ytra því hún er aðeins með þrjár lappir en lætur það ekki aftra sig við að gera alla hluti eins og hún gerði áður þegar hún var með sínar fjórar lappir. 12.2.2021 20:03