Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Ærin Stóra Svört á bænum Bjarnanesi í Hornafirði gerði sér lítið fyrir og bar fimm hraustlegum lömbum í gær, sem öll eru svört eins og foreldrar sínir. Ærin er sex vetra en hún var geld þegar hún var gemlingur en hefur fjórum sinnum verið fjórlemd og svo fimmlemd núna. 9.5.2024 12:01
Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Kúanöfn í íslenskum fjósum eru fjölbreytt og mörg þeirra mjög skemmtileg. Algeng nöfn eru eins og Skjalda, Branda, Skrauta og Blíða en í fjósinu á Hvanneyri eru ráðherranöfn vinsæl og þar stendur Áslaug Arna sig einstaklega vel í mjöltum. 5.5.2024 20:07
Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Nýtt tilraunaverkefni er að hefjast í leikskólum Árborgar þar sem ákveðið hefur verið að leikskólar verði lokaðir á mill jóla- og nýárs. Þá hefur menntuðum leikskólakennurum fækkað í leikskólum Árborgar, sem er mikið áhyggjuefni en sex leikskólar eru í sveitarfélaginu með um 660 börnum. 5.5.2024 14:30
Ætlað að móta aðgerðir gegn ofbeldi á Suðurlandi „Öruggara Suðurland“ er nýtt verkefni, sem lögreglan á Suðurlandi stendur fyrir í samstarfi við sveitarfélögin fjórtán á svæðinu og nokkrar stofnanir, en tilgangurinn er að móta aðgerðir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurlandi. 4.5.2024 21:06
Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Allir flottustu Mustang bílar landsins eru nú til sýnis á 60 ára afmælissýning Mustang, sem fer fram í Brimborg í Reykjavík. Reiknað er með um fjögur þúsund manns á sýninguna, sem stendur til klukkan 16:00 í dag. 4.5.2024 12:32
Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Eina langspilssveit landsins, sem vitað er um er skipuð um tuttugu nemendum Flóaskóla, sem smíða að auki öll sín hljóðfæri. Sveitin gerir það nú gott í Hörpu þar sem hún spilar á nokkrum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands. 1.5.2024 20:09
Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Brosið fer ekki af ungri konu, sem glímir við erfiða fötlun á Eyrarbakka. Ástæðan er sú að hún er komin með hjólastólinn sinn í "tengdamömuboxið" uppi á topp bílsins síns og ýtir bara á takka á fjarstýringu til að fá stólinn niður til sín. 30.4.2024 20:07
23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Það iðar allt af lífi og fjöri á heimili í Þorlákshöfn þessa dagana því 23 hvolpar úr tveimur gotum voru að koma þar í heiminn, þrettán rakkar og tíu tíkur. 28.4.2024 20:15
Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Lögreglustjórinn á Suðurlandi lofar góðu umferðareftirliti lögreglu á vegum svæðisins í sumar en umferð um Suðurland hefur aukist mikið síðustu mánuði. 28.4.2024 13:31
Sveitarstjóri og sauðfjárbóndi fóru á kostum Þeir voru ánægðir og stoltir með sig sveitarstjórinn í Mýrdalshreppi og sauðfjárbóndi í sveitinni, sem fengu að syngja „O sole mio“ á tónleikum í Vík með Gissuri Páli Gissurarsyni, tenór. 27.4.2024 20:15
Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Innlent