Óskar hefur sungið í fjögur þúsund jarðarförum Gamlir bílar og gömul bílnúmer eru honum hugleikinn, svo ekki sé talað um sönginn en hann hefur sungið í um fjögur þúsund jarðarförum. Hér erum við að tala um Álftagerðisbróðurinn Óskar Pétursson, sem Magnús Hlynur heimsótti í þætti sínum, „Mig langar að vita“ í hér á Stöð 2 í kvöld. 17.4.2023 21:16
Forseti Íslands ræddi um bómullarforeldra Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ræddi um snjóruðningsforeldra, þyrluforeldra og Excel-foreldra, sem saman mynda bómullarforeldra, þegar hann ávarpaði nemendur og gesti á 70 ára afmæli Menntaskólans að Laugarvatni í vikunni. 17.4.2023 15:38
Sjö egg í laup krummapars á Selfossi Enn og aftur hafa hrafnarnir Hrefna og Hrafn gert sér laup við verslun Byko á Selfossi og þar er Hrefna búin að verpa sjö eggjum. En þetta er ekki eini laupurinn á Selfossi. 16.4.2023 21:04
85 gráðu heitt vatn fannst á Selfossi Selfyssingar duttu í lukkupottinn í vikunni þegar það fannst mikið af heitu vatni eftir borun á bökkum Ölfusár. Um er að ræða 30 sekúndu lítra af 85 gráðu heitu vatni á níu hundruð metra dýpi. 15.4.2023 21:01
Mikil ánægja með hælisleitendur á Laugarvatni Mikil ánægja er hjá heimamönnum á Laugarvatni með þá sextíu hælisleitendur, sem dvelja nú tímabundið á heimavist á Laugarvatni. Sumt af fólkinu er farið að vinna sjálfboðavinnu á staðnum eða láta gott af sér leiða á annan hátt á meðan það bíður niðurstöðu sinna mála. 15.4.2023 13:06
Segja félagslífið miklu skemmtilegra en námið sjálft Það var hátíðarstemning á Laugarvatni í dag þegar menntaskólinn á staðnum fagnaði 70 ára afmæli sínu. Um 130 nemendur stunda nám við skólann og búa þeir allir á heimavist. Nemendur segja félagslífið langskemmtilegast við skólann. 12.4.2023 20:07
Um 70 prósent fæðinga landsins fara fram á Landspítalanum „Það er lífstíll og list“ að vera ljósmóðir segir rúmlega þrítug ljósmóðir, sem segist vera í draumastarfinu. Um 70% allra fæðinga landsins á hverju ári fara fram á fæðingadeild Landspítalans. Við fengum að kynnast störfum ljósmæðra í þættinum „Mig langar að vita“, sem sýndur var á Stöð 2 mánudagskvöldið 10. apríl. Hægt er að nálgast þáttinn í heild sinn á Stöð 2+. Magnús Hlynur Hreiðarsson er umsjónarmaður þáttanna. 11.4.2023 10:30
Hellarnir á Hellu njóta mikilla vinsælda Hellarnir á Ægissíðu á Hellu njóta alltaf mikilla vinsælda hjá íslenskum og erlendum ferðamönnum en fyrstu skráðu heimildir um þá er frá 1818. Hellarnir eru með þekktustu manngerðu hellum landsins en tólf hellar hafa fundist á Ægissíðu. 9.4.2023 20:05
Sjötíu ára afmæli Menntaskólans að Laugarvatni fagnað Menntaskólinn að Laugarvatni fagnar sjötíu ára afmæli sínu í vikunni, eða miðvikudaginn 12. apríl. Sérstök hátíðardagskrá verður að því tilefni þar sem forseti Íslands verður sérstakur heiðursgestur. Einnig verður opið hús í skólanum á afmælisdaginn þar sem öllum landsmönnum er boðið að koma í heimsókn til að skoða skólann, heimavistina og þiggja veitingar. 9.4.2023 13:04
Allt fullt af fólki í sumarbústöðum yfir páskana Allir sumarbústaðir, sem skipta þúsundum í Uppsveitum Árnessýslu eru fullir af fólki nú um páskahelgina. Sundlaugarnar eru vinsælasti afþreyingastaður fólksins í fríinu sínu. 8.4.2023 13:05