Fréttamaður

Magnús Jochum Pálsson

Magnús Jochum er umsjónarmaður Lífsins á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“

Johnny Depp mun leika nánösina Ebeneser Skrögg í Ebenezeri, nýrri aðlögun á Christmas Carol eftir Charles Dickens, sem verður frumsýnd næstkomandi nóvember. Depp hefur verið fjarverandi Hollywood síðan Amber Heard, fyrrverandi eiginkona hans, sakaði hann um heimilisofbeldi árið 2018 og þau tókust í kjölfarið á fyrir dómstólum.

Af­þakkaði milljón Banda­ríkja­dala fyrir eitt uppi­stand

Grínistinn Weird Al Yankovic segist hafa neitað að koma fram á grínhátíðinni í Ríad í Sádi-Arabíu síðasta haust þrátt fyrir að honum hafi boðist sjö stafa tala að launum. Hátíðin vakti mikið umtal og gagnrýni en fjöldi heimsfrægra grínista kom þar fram.

Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar

Undanfarin ár hefur verið mikill atgervisflótti úr stétt blaða- og fréttamanna á Íslandi og reglulega berast fregnir af fjölmiðlafólki sem skiptir um starfsvettvang. Oftar en ekki ganga slíkir flóttablaðamenn í störf upplýsingafulltrúa enda kjörin betri og álagið jafnvel minna. Vísir hefur tekið saman rúmlega fimmtíu upplýsingafulltrúa sem hafa komið af fjölmiðlum síðustu þrjá áratugi.

Biðst af­sökunar á ó­við­eig­andi sketsi með sau­tján ára Stodden

Leikarinn Jason Alexander, þekktastur fyrir leik sinn í Seinfeld, hefur beðið raunveruleikastjörnuna Courtney Stodden opinberlega afsökunar vegna óviðeigandi skets sem þau tóku upp saman þegar hún var sautján ára. Stodden varð heimsfræg sextán ára gömul þegar hún giftist 51 árs gamla leikaranum Doug Hutchison og berst í dag fyrir því að lágmarksgiftingaraldur verði hækkaður í átján ár í Kaliforníu.

Lofar nýrri Ódys­seifs­kviðu fyrir árs­lok

Auðkýfingurinn Elon Musk hefur ítrekað gagnrýnt leikstjórann Christopher Nolan síðustu mánuði vegna ráðningar hans á hörundsdökkum leikurum og trans manni í Ódysseifskviðu. Nú hefur Musk lýst því yfir að gervigreindararlíkan hans, Grok Imagine, muni ljúka við „sögulega nákvæmari“ aðlögun á Ódysseifskviðu fyrir árslok.

Ali G snýr aftur

Gervitöffarinn Ali G sem varð frægur um aldamótin snýr aftur í framhaldsmyndinni Ali G: Who Iz I? í oktber. Fyrri myndin, Ali G In Da House, kom út 2002 og var fyrsta stóra kvikmyndahlutverk Sacha Barons Cohen.

Sein­leg heim­för sakbitins Ódys­seifs

The Odyssey eftir Christopher Nolan er epísk þriggja tíma ævintýraferð um Miðjarðarhafið þar sem Ódysseifur tekst á við reiði guðanna og ógnvænleg skrímsli en líka eigin sektarkennd. Sjónarspil, hasar og Hollywood-stjörnur ráða för þó Nolan setji sitt eigið handbragð á söguna með nútímalegri, ögn náttúrulausri og kristinni nálgun.

Elín Hall opnar sig um brjósta­minnkunina

Tónlistar- og leikkonan Elín Hall tjáði sig á TikTok um brjóstaminnkun sem hún fór í eftir tökur á kvikmyndinni Lof mér að falla. Brjóstin hafi verið þung byrði og flækst fyrir henni þannig hún er sérstaklega þakklát lýtalækni sínum.

Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið

Vivienne Jolie-Pitt, yngsta dóttir leikaranna Angelinu Jolie og Brads Pitt, hefur sóst opinberlega eftir því hjá dómstólum að losa sig við eftirnafnið Pitt. Hún er fjórða barn hjónanna fyrrverandi sem hefur losað sig við eftirnafn föðurins eða sóst eftir því.

Robbie Williams út­skýrir dular­fulla hvíta efnið

Breski popparinn Robbie Williams tróð upp í hálfleik úrslitaleiks HM á sunnudaginn en vakti þó mun meiri athygli vegna viðtals sem hann fór í eftir leikinn. Þar lenti hvítt korn á hljóðnemanum sem popparinn hélt á og var hann fljótur að fjarlægja það. Netverjar voru snöggir að lýsa því yfir að þarna væri um kókaín að ræða en popparinn sjálfur segir um saklausari efni að ræða.

Sjá meira