Útgerðarmaðurinn hyggst ekki draga kaupin til baka Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segist óska þess að sýslumaður hefði upplýst sig um stöðu ungs manns sem borinn verður út úr skuldlausi húsi sínu á föstudag. Útgerðarmaður sem keypti húsið á þrjár milljónir á nauðungaruppboði ætlar ekki að endurskoða kaupin. 28.6.2023 20:12
„Þessi fjölskylda er búin að fá mörg, mörg, mörg tækifæri“ Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir mál ungs fatlaðs manns sem bera á út úr húsi sínu eftir að það var selt á nauðungarsölu, fjölskylduharmleik. Þingmenn sem gagnrýnt hefðu vinnubrögð sýslumanns harðlega, ættu að líta sér nær. 28.6.2023 12:43
Bylgja manndrápsmála gengur yfir Afbrotafræðingur segir bylgju manndrápsmála sem nú gengur yfir vera áhyggjuefni. Ef fram haldi sem horfi væri verið að stíga inn í allt annað umhverfi en þekkst hafi hér á landi. Fjöldi útlendinga sem fremji eða verði fyrir brotum sé merki um viðkvæmari stöðu þeirra. 25.6.2023 19:21
Segir það ekki Íslandsbanka að birta sáttina Birting sáttar sem Íslandsbanki gerði við Fjármálaeftirlitið strandar ekki á undirskrift stjórnenda bankans samkvæmt svörum frá samskiptastjóra. Skrifað var undir sáttina í gær og verður hún væntanlega gerð opinber á morgun. Þá skýrist meðal annars hvort kaup eiginmanns samskiptastjóra í bankanum hafi verið lögleg. 25.6.2023 14:47
Heimaþjónusta skert á Akureyri: „Það eru ekki umsækjendur um störfin“ Erfiðlega gengur að fá fólk til starfa hjá Velferðarsviði Akureyrarbæjar. Forstöðumaður segir stöðuna það versta sem hún hafi séð. Skerða þarf þjónustu við íbúa vegna þessa en skerðingin felur meðal annars í sér að heimilisþrif verða ekki lengur í boði. 25.6.2023 13:35
Skorar á stjórnendur Íslandsbanka að birta sáttina í dag Menningar- og viðskiptaráðherra skorar á stjórnendur Íslandsbanka að birta sátt sem bankinn gerði við Fjármálaeftirlitið, ekki síðar en í dag. Hún segir framkomu stjórnenda bankans í garð almennings einkennast af virðingarleysi. 25.6.2023 12:03
Maðurinn sem lést var frá Litáen Maðurinn sem lést í gær í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar var litáískur. Ekki lítur út fyrir að vopnum hafi verið beitt en lögregla gefur lítið upp um málið annað en að það sé óvenjulegt miðað við önnur manndrápsmál sem eru til rannsóknar. Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins. 25.6.2023 10:11
Óttaðist að hann væri boðberi krabbameins: „Þetta er endurtekning á öllu“ Fimm barna faðir og ekkill sem missti eiginkonu sína úr krabbameini segist á tímabili hafa haldið að hann smitaði fólk í kringum sig af krabbameini. Hann styður nú kærustu sína í gegnum krabbameinsmeðferð en auk konu sinnar hefur hann á örfáum árum misst foreldra, tengdaforeldri og vini úr sjúkdómnum skæða. 25.6.2023 07:00
„Augljóst að eitthvað er að gerast og virðist vera nokkuð alvarlegt“ Utanríkisráðherra fylgist grannt með framvindu mála í Rússlandi og metur stöðuna klukkustund frá klukkustund. Hún segir stöðuna ekki koma á óvart þar sem þetta hafi verið ein af þeim sviðsmyndum sem hafi verið teiknaðar upp. Þó sé enn óljóst að leggja mat á hvað raunverulega sé að gerast. 24.6.2023 16:13
„Menn geta ekki lagt á flótta þegar þeir þurfa að svara“ Formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar segir svör bankastjóra Íslandsbanka varðandi sáttagreiðslu bankans við fjármálaeftirlitið í meira lagi loðin. Hún kallar eftir útskýringum fjármálaráðherra sem beri ábyrgð á málinu og segir ekki eðlilegt að menn leggi á flótta þegar svara er krafist. Bjarni Benediktsson hyggst ekki tjá sig um málið að svo stöddu. 24.6.2023 11:42