L'Équipe: Mbappé byrjar á bekknum í kvöld Kylian Mbappé verður ekki í byrjunarliði Frakka í kvöld þegar liðið mætir Hollandi í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í fótbolta í Þýskalandi. 21.6.2024 13:43
Sjáðu mörkin þegar Víkingsstelpur unnu fyrstar topplið Blika Breiðablik tapaði sínum fyrstu stigum og sínum fyrsta leik þegar liðið heimsótti Víkinga í Fossvoginn í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær. 21.6.2024 13:30
Guðmundur fer með Fredericia í Meistaradeildina Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia Håndbold Klub fengu í dag boð frá evrópska handboltasambandinu um að spila í Meistaradeildinni í handbolta á næstu leiktíð. Þetta er stór stund fyrir danska félagið. 21.6.2024 11:19
Guðni forseti: Leiðinlegt að sjá fólk fjarstýra krökkunum Nú má sjá nýjasta þáttinn af Sumarmótunum hér á Vísi en að þessu sinni var TM mótið í Vestmannaeyjum heimsótt. 21.6.2024 11:01
Íslenska vegabréfið skilar Danielle samningi hjá Euro Cup liði Danielle Rodriguez spilar ekki áfram með Grindavík í Subway deild kvenna í körfubolta á næstu leiktíð því þessi öfluga körfuboltakona hefur samið við svissneska félagið BCF Elfic Fribourg Basket. 21.6.2024 10:30
Strákarnir í Stúkunni ekki sammála um vítin í leik Vals og Víkings Valsmenn tóku stig af toppliði Víkings þökk sé tveimur umdeildum vítaspyrnum. Stúkan ræddi þessa tvo vítadóma í síðasta þætti sínum. 21.6.2024 10:01
Óskar Hrafn ekki hrifinn af Southgate: „Eins og hundrað ára gamall prófessor“ Gareth Southgate, þjálfari enska fótboltalandsliðsins, var harðlega gagnrýndur eftir frammistöðu enska liðsins á móti Dönum á EM í gær. Ekki bara hjá enskum fjölmiðlum heldur einnig af Óskari Hrafni Þorvaldssyni. 21.6.2024 09:01
Ólympíudraumur Eyþóru úti eftir grátlegt slys Draumur Eyþóru Elísabetar Þórsdóttur um að keppa á þriðju Ólympíuleikunum í röð er úti eftir slys á æfingu í gær. Hún greinir frá gríðarlegum vonbrigðum á samfélagsmiðlum sínum. 21.6.2024 08:30
Snorri Dagur varamaður inn í undanúrslitin Þrír íslenskir sundmenn syntu á fjórða deginum á Evrópumeistaramótinu í sundi í Belgrad. Engin þeirra komst áfram en það er enn smá von um að Snorri Dagur Einarsson fái að synda í undanúrslitunum. 21.6.2024 08:30
Hlaðvarpsfélagi LeBrons nýr þjálfari LA Lakers JJ Redick hefur gert fjögurra ára samning um að þjálfa NBA lið Los Angeles Lakers en bandarískir fjölmiðlar greina frá þessu. 21.6.2024 08:01