Cantona hefði getað spilað fyrir Liverpool Graeme Souness var knattspyrnustjóri Liverpool þegar Eric Cantona kom inn í ensku úrvalsdeildina. Það er honum að kenna að Cantona spilaði ekki fyrir Liverpool heldur fór frekar í Leeds. Cantona átti síðan risastóran þátt í velgengni Manchester United á tíunda áratug síðustu aldar. 6.3.2024 09:12
Tuchel tábraut sig rétt fyrir leik Thomas Tuchel stýrði Bayern München inn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 3-0 sigur á Lazio í seinni leik liðanna. Bayern tapaði fyrri leiknum og sýndi allt annan og betri leik í gærkvöldi. 6.3.2024 08:51
„Ólafur Ragnar úr Næturvaktinni“ vann BKG og er efstur Íslendinga í 24.1 Keppendur í The Open hafa nú skilað inn árangri sínum í fyrsta hlutanum af þremur og það er óhætt að segja að þar séu óvæntir hlutir að gerast karlamegin. 6.3.2024 08:31
Sjáðu mörk Mbappé og Kane í Meistaradeildinni í gærkvöldi Stórstjörnurnar Kylian Mbappé og Harry Kane voru báðir á skotskónum í mikilvægum leikjum í Meistaradeildinni í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi. 6.3.2024 07:41
Heimir myndi elska það að vera með Greenwood í sínu liði Heimir Hallgrímsson talaði á ný um áhuga sinn á því að Mason Greenwood verði landsliðsmaður Jamaíku. 6.3.2024 06:31
Henda meira en ellefu milljörðum út um gluggann NFL-félagið Denver Broncos hefur tekið þá risastóru ákvörðun að losa sig við leikstjórnandann Russell Wilson þrátt fyrir að hann eigi tvö ár eftir af samningi sínum við félagið. 5.3.2024 16:30
Dreginn til skiptis inn og út af vellinum Einhverjir vilja halda því fram að leiktöf sé ákveðin útgáfa af list. Þeir eru þó ekki mjög margir enda að flestra mati það leiðinlegasta við íþróttirnar. 5.3.2024 16:01
Ekkert lið nálægt Liverpool í sigurmörkum á síðustu stundu Darwin Núnez skoraði gríðarlega mikilvægt sigurmark fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni um helgina og bættist þar með í hóp fjölmargra leikmanna liðsins sem hafa skorað dramatísk sigurmörk á lokamínútunni eða í uppbótartíma. 5.3.2024 10:30
Neymar áhugasamur um að spila aftur með Messi Brasilíumaðurinn Neymar er farinn að tala um það að spila aftur með Lionel Messi og sterkur orðrómur er nú um að þeir spili saman á ný hjá bandaríska félaginu Inter Miami í framtíðinni. 5.3.2024 09:31
Enginn vítahrollur í Ómari Inga að undanförnu Íslenski landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon fór illa með vítin á EM í Þýskalandi en hann hefur skorað úr flestum vítum allra í þýsku deildinni 5.3.2024 09:00