Stórir sigrar hjá Knicks og Warriors í kvöld | Umspil NBA-deildarinnar útskýrt Alls fóru sex leikir fram í NBA-deildinni í körfubolta í kvöld. Það er nánast allt klárt varðandi úrslitakeppnina og umspilið sem klárast áður.Deildin klárast hins vegar í nótt þegar aðrir tíu leikir fara fram og þar eru tveir sem skera sig úr. 16.5.2021 22:45
Lille í bílstjórasætinu fyrir lokaumferðina Næstsíðasta umferð frönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fór fram í kvöld. Þrátt fyrir 4-0 sigur París Saint-Germain þá er það Lille sem er í bílstjórasætinu fyrir lokaumferð deildarinnar. 16.5.2021 22:17
Þetta var búið áður en þetta byrjaði Emma Hayes, þjálfari Chelsea, var hálf buguð þegar hún mætti í viðtal eftir 4-0 tap gegn Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvöld. 16.5.2021 21:56
Skelfileg byrjun varð Chelsea að falli er Barcelona vann Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn Barcelona gekk einfaldlega frá Chelsea á rúmum hálftíma er liðin mættust í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í dag. Lokatölur 4-0 Börsungum í vil sem voru að vinna Meistaradeildina í fyrsta sinn. 16.5.2021 21:00
Milan mistókst að vinna Cagliari og Meistaradeildarsætið í hættu AC Milan gerði markalaust jafntefli við Cagliari í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 16.5.2021 20:46
Gylfi Þór spilaði síðari hálfleik í tapi gegn botnliðinu Sheffield United vann óvæntan 1-0 útisigur á Everton í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 16.5.2021 19:50
Misjafnt gengi hjá Íslendingaliðunum í Noregi Fjöldinn allur af Íslendingum var í eldlínunni í dag er fjöldinn allur af leikjum fór fram í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 16.5.2021 19:15
Sigurmark Suaréz undir lok leiks þýðir að Atlético er enn í bílstjórasætinu Luis Suárez reyndist hetja Atlético Madrid er liðið lagði Osasuna 2-1 í næstsíðustu umferð La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Atlético er því enn í toppsæti deildarinnar og dugir sigur í lokaumferðinni til að landa titlinum. 16.5.2021 18:30
Titilbaráttu Barcelona er lokið Barcelona tapaði 2-1 á heimavelli gegn Celta Vigo í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í dag. 16.5.2021 18:25
Real heldur í vonina Spánarmeistarar Real Madrid unnu gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á Athletic Bilbao í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í dag. Lengi leit vel út fyrir að sigurinn myndi lyfta Real á topp deildarinnar þegar aðeins ein umferð er eftir. 16.5.2021 18:25