Jóhann Berg tryggði Burnley stig og níu menn Newcastle héldu út Jóhann Berg Guðmundsson skoraði eina mark Burnley í 1-1 jafntefli gegn Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þá vann Newcastle United 3-2 sigur á Southampton. 6.2.2021 17:00
Holstebro fyrsta liðið til að vinna GOG | SønderjyskE og Skjern með sigra Nokkuð var um óvænta sigra í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Holstebro varð fyrsta liðið til að vinan GOG, 35-30. Þá vann SønderjyskE fimm marka sigur á Ribe-Esbjerg, 28-23. 6.2.2021 16:50
KR White Reykjavíkurmeistarar í Rocket League Keppt var um Reykjavíkurmeistaratitilinn í rafíþróttinni Rocket League á Reykjavíkurleikunum, RIG, í dag. Þar fóru KR White með sigur af hólmi. 6.2.2021 16:25
Mikilvægur sigur hjá Lyon á meðan hvorki gengur né rekur hjá Le Havre Sara Björk Gunnarsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir voru í eldlínunni í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Sara Björk lék allan leikinn á miðju Lyon er liðið vann 2-1 sigur á Montpellier. Anna Björk var í miðverði Le Havre sem tapaði enn einum leiknum. 6.2.2021 16:11
Mikilvægur sigur hjá Alberti og félögum á meðan Guðlaugur Victor mátti þola súrt tap Albert Guðmundsson og AZ Alkmaar vann mikilvægan sigur í Evrópubaráttunni í Hollandi. Á sama tíma eru Guðlaugur Victor Pálsson og samherjar hans í Darmstadt að sogast niður í fallbaráttu þýsku B-deildarinnar. 6.2.2021 15:15
Selfoss heldur áfram að sækja leikmenn Selfoss hefur styrkt sig enn frekar fyrir komandi átök í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar. Í dag var staðfest að félagið hefði samið við Evu Núru Abrahamsdóttur um að leika með liðinu næsta sumar. 6.2.2021 15:00
Slæmt gengi Arsenal heldur áfram Aston Villa lagði Arsenal 1-0 í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Arsenal hefur nú leikið þrjá leiki í röð án sigurs á meðan Villa hefur nú unnið þrjá af síðustu fimm. 6.2.2021 14:25
Körfuboltakvöld um Styrmi Snæ: „Hann er yfirleitt settur á bestu leikmennina“ Styrmir Snær Þrastarson er við það að gera Kjartan Atla Kjartansson og félaga í Dominos Körfuboltakvöldi orðlausa. Þeir héldu áfram að mæra leikmanninn í síðasta þætti. Segja má að Styrmir hafi komið eins og stormsveipur inn í deildina á þessu tímabili. 6.2.2021 14:02
Eva Margrét og Freyja tryggðu sér sæti á EM unglinga í sundi Þær Eva Margrét Falsdóttir og Freyja Birkisdóttir fóru vel af stað á Reykjavíkurleikunum, Reykjavík International Games [RIG]. Tryggðu sundkonurnar sér þátttökurétt á Evrópumeistaramóti unglinga í sundi sem fram fer í sumar. 6.2.2021 13:01
Algerir yfirburðir Barcelona Aron Pálmarsson og félagar í Barcelona eru enn með fullt hús stiga í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir stórsigur dagsins. Að þessu sinni var það Anaitasuna sem lá í valnum, lokatölur 40-23. 6.2.2021 12:36