Sigvaldi Björn hjá Kielce þangað til 2022 Handknattleiksmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson framlengdi í dag samning sinn við pólska stórliðið Łomża Vive Kielce. Er hann nú samningsbundinn til ársins 2022. 9.12.2020 23:01
Bára Kristbjörg til liðs við Kristianstad í Svíþjóð Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir mun ekki stýra liði Augnabliks í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu næsta sumar þar sem hún er nýr þjálfari U17 og U19 ára liða Kristianstad í Svíþjóð. Elísabet Gunnarsdóttir hefur stýrt aðalliði félagsins við góðan orðstír undanfarin ár. 9.12.2020 22:30
Þægilegt hjá Bayern, Atlético, Man City og Porto Bayern München, Atlético Madrid, Manchester City og Porto voru öll komin áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar er leikir kvöldsins hófust. Það breytti því ekki að öll fjögur lið unnu sína leiki ásamt því að halda marki sínu hreinu. 9.12.2020 22:15
Benzema skaut Real í 16-liða úrslit | Inter endaði á botni riðilsins Karim Benzema skoraði bæði mörk Real Madrid í 2-0 sigri á Borussia Mönchengladbach í B-riðli Meistaradeildar Evrópu. Inter Milan og Shakhtar Donetsk gerðu markalaust jafntefli í Mílanó sem þýðir að Inter er fallið úr leik. 9.12.2020 21:55
Haukur Helgi stigahæstur í naumu tapi Haukur Helgi Pálsson var stigahæstur er lið hans MoraBanc Andorra tapaði með sex stiga mun á heimavelli gegn Lokomotiv-Kuban í Evrópudeildinni í körfubolta í kvöld, lokatölur 100-106. 9.12.2020 21:46
Bielsa ekki í neinum feluleik: Gaf upp byrjunarliðið á blaðamannafundi Marcelo Bielsa er ekki alveg eins og hinn hefðbundni knattspyrnuþjálfari. Hann kom enn og aftur á óvart á blaðamannafundi í dag er hann gaf upp byrjunarlið Leeds United fyrir leik liðsins gegn West Ham United á föstudaginn. 9.12.2020 21:31
Aftur vann GOG í Ungverjalandi | Elvar Örn lék vel í góðum sigri Skjern Viktor Gísli Hallgrímsson átti frábæran leik er GOG vann Tatabánya í Ungverjalandi annan daginn í röð í Evrópudeildinni í handbolta. Í Danmörku átti Elvar Örn Jónsson góðan leik fyrir Skjern. 9.12.2020 21:00
Þjálfari HK: Ef við fáum ekki að æfa fyrr en þá er hætt við að mótið sé ónýtt Þjálfarar HK í handbolta, karla og kvenna megin, hafa töluverðar áhyggjur af ástandinu sem stendur. Ef karlaliðið fær ekki að hefja æfingar fyrr en 12. janúar hefur liðið ekki æft í fjóra mánuði og kvenna megin eru hátt í þrjátíu stelpur á aldrinum sextán til tuttugu ára sem geta ekkert æft. 9.12.2020 20:25
Mikael og VAR komu við sögu í jafntefli Liverpool í Danmörku | Atalanta áfram og PSG vann stórsigur VAR kom mikið við sögu í 1-1 jafntefli Liverpool og Midtjylland í kvöld. Atalanta fór einnig áfram upp úr D-riðli og þá vann Paris Saint-Germain stórsigur á İstanbul Başakşehir í leik sem var frestað í gærkvöld. 9.12.2020 19:55
Bodø/Glimt komið með 100 mörk | Mikilvægur sigur Strømsgodset í fallbaráttunni Alls voru fjögur Íslendingalið í eldlínunni í norska boltanum í kvöld. Alfons Sampsted og félagar í Bodø/Glimt eru hvergi nærri hættir þó titillinn sé í höfn. Strømsgodset vann góðan sigur og Sandefjord gerði markalaust jafntefli. 9.12.2020 19:05